Eyjamaðurinn hressi Kári Kristján Kristjánsson er í landsliðshópi Íslands í handbolta sem tekur þátt í Heimsmeistaramótinu í Svíþjóð. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari tilkynnti hóp sinn fyrr í kvöld en í honum eru 17 leikmenn. Kári þótti spila mjög vel í síðari æfingaleiknum gegn Þjóðverjum en sú frammistaða skilaði Kára inn í lokahópinn fyrir stærsta mót ársins. Fyrsti leikur Íslands er á föstudag þegar strákarnir leika gegn Ungverjum.