Vegna breytinga á rekstri Rauðagerðis Frístundahús
�?g hóf störf á Rauðagerði Frístundahús árið 2007, fyrstu árin samhliða kennslu í unglingadeild GRV, og tel ég mig því búa að ágætri reynslu eftir 9 ára starf með unglingum. Á þessum árum hefur gengið á ýmsu, aðsóknin farið upp og niður, opnunartími og þjónusta breyst, en alltaf höfum við verið til staðar fyrir unglingana okkar. Næsta vetur stöndum við frammi fyrir miklum breytingum sem ég tel bitna mest á þeim sem minnst mega við því, dagopnunin verður verulega skert og einblínt á kvöldopnun skv. Formanni Fjölskyldu-og tómstundarráðs.
�?essi ákvörðun var tekin í framhaldi af fundi sem fagráðið átti með Unglingaráði Rauðagerðis og segir formaðurinn að; �??�?ær breytingar sem gerðar voru á opnunartíma Féló í kjölfarið voru eingöngu hugsaðar til að bregðast við þeirra óskum og í raun var óskum þeirra fylgt í einu og öllu að undan skyldu því að ráðið gat ekki orðið við því að hafa lengri opnun á laugardögun eða til 23 í stað 22.�?? Mér finnst frábært að unglingarnir séu boðaðir á fund og að hlustað sé á þá, en að sama skapi finnst mér mjög einkennilegt að starfsmenn stofnunarinnar séu ekki líka boðaðir á fund og þeir spurðir álits. Í vetur hafa alls 135 unglingar í 8.-10. bekk komið í heimsókn til okkar, þarfir þeirra eru misjafnar eins og þau eru mörg, sumir koma bara á kvöldin, aðrir bara á daginn, enn aðrir bara á viðburði osfrv. Með því að taka dagopnunina út tel ég að verið sé að loka á ákveðinn hóp unglinga, sem þurfa jafnvel hvað mest á félagsmiðstöðinni að halda. �?g sat fund með unglingaráðinu þrem tímum eftir að þau sátu fund með fagráðinu, þá voru þau búin að melta það sem fram fór á fyrri fundinum, þau voru svekkt og fannst þau hafa verið illa blekt.
Núna stöndum við frammi fyrir því að næsta vetur verði opið 16:00-18:00 þriðjudaga og miðvikudaga, og svo öll kvöld nema fimmtudags- og sunnudagskvöld 19:30-22:00 samtals 16,5 klst. Samkvæmt bréfum sem við Forstöðukona Rauðagerðis fengum þá eru henni boðin 50% staða og mér 40% staða, til að ná þessum prósentum þarf líklegast að vinna alla opnunartíma og lítill sem enginn tími í undirbúning. Fyrir fólk á vinnumarkaði þá eru þetta ekki háar prósentur og vinnutíminn alls ekki góður fyrir fólk sem á fjölskyldu og vini, hver vill vera í vinnu 5 kvöld vikunnar og eiga aldrei frí á föstudags- og laugardagskvöldum frá 1. september til 31. maí?
�?g hef miklar áhyggjur af því að þetta eigi eftir að bitna á þessu flotta og góða starfi sem við höfum verið að byggja upp hér á Rauðagerði undanfarin ár. Með minni undirbúningstíma og jafnvel fleira starfsfólki sem vinnur minni vinnu, (þar sem ég reikna ekki með að nokkur sætti sig við þennan vinnutíma), þá minnkar faglegt starf til muna, tengslin við unglingana minnka og aðsókn gæti dalað, en það er kannski það sem fagráðið stefnir að, að loka Rauðagerði?
Upphaflega ætlaði ég bara að vinna 2-3 vetur á Rauðagerði, svona á meðan ég væri að koma mér almennilega fyrir í Vestmannaeyjum, en allt í einu eru komnir 9 vetur. �?etta hefur verið alveg frábær tími, þrátt fyrir að vera ekki hálaunuð þá hefur starfið gefið mér alveg ótrúlega mikið, að finna að maður skiptir máli í lífi unglinga sem eru manni alls óskildir, að geta hjálpað þeim sem eiga jafnvel ekki í mörg hús að vernda og eru jafnvel vinafáir, taka þátt í keppnum og að skipuleggja viðburði sem styrkir sjálfsmynd og sjálfstæði, ferðast, hlæja, spila, spjalla ofl. Að ógleymdum yndislegu strákunum okkar sem hafa komið til okkar í lengda skólaviðveru, sem hafa þroskað okkur, unglingana og þá sjálfa í samskiptum við hvort annað.
Að lokum langar mig að nefna eitt við Formann Fjölskyldu og tómstundaráðs, mér fannst þú full snöggur til að verja uppsagnir starfsmanna og niðurskurð á starfsemi �??Féló�?? í fjölmiðlum, ég var ekki einu sinni búin að fá uppsagnarbréfið!

Nýjustu fréttir

Erfið staða í Land­eyja­höfn
Tvær flugferðir á dag á meðan beðið er opnunar Landeyjahafnar
Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Skyldumæting í höllina í dag!
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.