ÍBV mætir Stjörnunni í Lengjubikar karla á morgun en leikurinn fer fram á Samsung-vellinum í Garðabæ. Leikurinn hefst klukkan 12:00 en ÍBV er með þrjú stig eftir tvo leiki. Stjarnan vann eina leik sinn sem var gegn Fram fyrir þremur vikum síðan.
ÍBV vann Huginn um þar síðustu helgi með tveggja marka mun en ÍBV komst í 3-0 í þeim leik áður en Huginsmenn minnkuðu muninn. Aron Bjarnason, Bjarni Gunnarsson og Elvar Ingi Vignisson skoruðu allir í þeim leik. ÍBV hafði áður tapað leik gegn Keflavík en í þessum tveimur leikjum höfðu dönsku leikmenn Eyjamanna ekki fengið leikheimild.
�?eir Mikkel Maigaard og Simon Smidt eru nú báðir komnir með leikheimild og verða í eldlínunni hjá ÍBV á morgun. Markvörðurinn Derby Carillo verður þó ekki kominn með leikheimild þar sem enn er verið að vinna í félagaskiptum hans.
Við hvetjum alla sem geta mætt á leikinn til þess að mæta, einnig minnum við á styrktarleikinn fyrir Abel Dhaira sem fer fram á sunnudaginn.