Loðnuvertíð stendur nú sem hæst hjá Vinnslustöðinni (VSV). Á þessari vertíð framleiðir VSV nánast eingöngu loðnuhrogn en sáralítið var fryst af hrygnu fyrir Japansmarkað og hæng fyrir rússneskumælandi þjóðir. Veiðar hafa gengið vel hjá skipum VSV og ástand loðnunnar gott. Nú vinna rúmlega 100 manns á vöktum hjá félaginu auk annarra starfsmanna í bolfiskfrystingu, saltfiskvinnslu, bræðslu og sjómanna á skipum félagsins. �?ví má segja að gamla góða vertíðarstemmingin ríki hjá félaginu þessa dagana.
Sá hængur er þó á stemmingunni að loðnukvóti Íslendinga var óvenju lítill í ár og vertíðin verður að sama skapi stutt hjá starfsfólki VSV. Íslendingar fengu einungis 58% af útgefnum loðnukvóta og er þá meðtalinn hlutur ríkisins sem dregst frá því sem féll í hlut íslenskra útgerða. Á loðnumörkuðum eru áhrifin þau að íslensk loðna, framleidd af samkeppnisaðilum Íslendinga, er nú boðin í beinni samkeppni við loðnuna sem áður var veidd af íslenskum sjómönnum, unnin af íslensku fiskvinnslufólki og boðin af starfsmönnum íslenskra sölufyrirtækja. �?annig runnu tekjurnar áður af loðnunni að fullu inn í íslenskt þjóðarbú, öllum landsmönnum til heilla.