Sameinast í kröfu um nýtt skip og endurbætur á Landeyjahöfn
Í könnun sem MMR gerði fyrir Eyjar.net svöruðu um þrír fjórðu játandi spurningunni; viltu ferju sem getur siglt bæði til �?orlákshafnar og í Landeyjahöfn? Tæplega helmingur telur mjög ólíklegt að Landeyjahöfn nýtist allt árið og yfir 80 prósent segja stöðuna í siglingum á sjó hafi neikvæð áhrif á íbúaþróun í Eyjum. �?á er spurt um traust til Vegagerðarinnar, innanríkisráðuneytisins og bæjarstjórnar til að taka ákvarðanir um framtíðarskipulag samgangna milli lands og Eyja. Traustið er ekki mikið á Vegagerð og ráðuneytinu samkvæmt könnuninni en um helmingur ber mikið eða frekar mikið traust til bæjarstjórnar.
Fátt kemur á óvart í könnuninni sem var birt á mánudaginn nema að traust á bæjarstjórn hefur minnkað ef marka má könnun sem hún lét gera í haust. Strax í fyrrakvöld brást bæjarstjórn við og tók undir óánægju með núverandi fyrirkomulag sjósamgangna milli lands og Vestmannaeyja. Bæjarstjórn vill fá sem stærsta ferju til að sigla sem flestar ferðir í Landeyjahöfn, að hún verði hönnuð til siglinga í bæði Landeyjahöfn og �?orlákshöfn því ekki sé tryggt að siglt verði í Landeyjahöfn alla daga ársins.
Bæjarstjórn hefði viljað endurbætur á Landeyjahöfn áður en skip er smíðað og það strax en rannsóknir skorti. �??Breytingar á höfninni eru hinsvegar enn til skoðunar og að mati þeirra sem best þekkja til eru enn að minnsta kosti einhver ár í að hægt verði að bæta höfnina með slíkum aðgerðum. �?að sem hægt er að gera strax er að smíða nýtt skip og bæta þannig ástandið,�?? segir í ályktuninni.
�?ar er líka lýst yfir skilningi á reiði og vantrausti fólks en um leið er bæjarstjórn þakklát fyrir þann stuðning sem hún fær í könnun MMR. Heitir hún að berjast af öllu afli fyrir hagsmunum Vestmannaeyja í samgöngum. �??Við teljum að næsta skref í bættum samgöngum við Vestmannaeyjar sé að smíðað verði nýtt skip sem bæti öryggi í siglingum og fjölgi þeim dögum sem siglt er í Landeyjahöfn. Baráttan fyrir endurbótum á höfninni verður að halda áfram,�?? segir í lokaorðum ályktunarinnar sem allir bæjarfulltrúar skrifuðu undir.
�?að kveður við svipaðan tón í ályktun 17 aðila í ferðaþjónustu þar sem skorað er á ríkistjórnina að halda ótrauð áfram í þeirri vinnu að smíða nýja ferju á milli Landeyja og Vestmannaeyja og að henni verði lokið eigi síðan en vorið 2018. �?�Samhliða er þess krafist að leitað verði allra lausna til að brúa þetta millitímabil með annarri hentugri ferju sem getur siglt í Landeyjahöfn fleiri mánuði ársins.
�??Við sem störfum í ferðaþjónustunni erum sammála því að siglingar í Landeyjahöfn eru framtíðarlausn og eini vænlegi kosturinn í samgöngum milli lands og Eyja. Staðreyndin er sú að við í Vestmannaeyjum fáum því miður ekki brot af þeirri aukningu ferðamanna sem er almennt til Íslands allt árið um kring en í dag er Landeyjahöfn búin að vera lokuð samfleytt í 105 daga,�?? segir í ályktuninni sem birtist á mánudaginn.
Flestir Eyjamenn geta tekið undir það sem fram kemur hér að ofan en mörgum spurningum er ósvarað. Meðal þeirra eru, hvers vegna gengur nýju dæluskipi ekki betur að dæla en raun ber vitni? Líka má spyrja hvort möguleiki sé á dælingu óháð veðri og vindum?

Nýjustu fréttir

ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Skyldumæting í höllina í dag!
Undirskriftalisti vegna ástandsins í Landeyjahöfn
ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.