Háskólinn í Reykjavík hefur opnað fyrir umsóknir í háskólanám í haftengdri nýsköpun
Háskólinn í Reykjavík sendi frá sér þessa tilkynningu í morgun.
Háskólinn í Reykjavík hefur opnað fyrir umsóknir í háskólanám í haftengdri nýsköpun sem hefst næsta haust. Námsbrautin er staðsett í Vestmannaeyjum og námið er skipulagt í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Námið er þrjár annir og veitir diplómagráðu í haftengdri nýsköpun en útskrifaðir nemendur munu einnig geta nýtt einingar í áframhaldandi nám við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Akureyri.
�??Sjávarútvegur er einn af undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar og það skiptir mjög miklu máli að við náum að hámarka þau verðmæti sem sjávarútvegurinn skapar. Leiðin til þess er að efla nýsköpun og menntun á sviði sjávarútvegs og við erum mjög ánægð með að geta nú, í samstarfi við Háskólann á Akureyri og öflug sjávarútvegsfyrirtæki, boðið upp á þetta nám í Vestmannaeyjum,�?? segir Ari Kristinn Jónsson, rektor HR.
Meðal námskeiða sem kennd verða á námsbrautinni eru nýsköpun og stofnun fyrirtækja, markaðsfræði, rekstrarstjórnun, alþjóðaviðskipti , upplýsingatækni og veiðitækni. Kennarar eru frá viðskiptadeild HR, auðlindadeild HA og fyrirtækjum í sjávarútvegi. Nemendur munu vinna styttri og lengri verkefni sem snúa meðal annars að vinnslutækni, skráningu, ferlum og markaðsmálum. �?eir kynnast þannig virðiskeðjunni sem hefst við veiðar og lýkur á borði neytenda út um allan heim.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu og Fésbókarsíðu námsins:
http://www.ru.is/vd/haftengd-nyskopun/ https://www.facebook.com/haftengdnyskopun
Mynd frá höfninni í Vestmannaeyjum: http://we.tl/Vmka7Wb3RS
Nánari upplýsingar veitir:
Eiríkur Sigurðsson, forstöðumaður markaðs- og samskiptasviðs HR í síma 859 5117, netfang eirikursig@hr.is

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.