,,Vestmannaeyjar eru yndislegur staður og það eru bara forréttindi að fá að alast upp og búa hér á þessum fallega stað með náttúruna í hverju spori. Ef samfélagið á að blómstra hér allt árið eins og það gerir um sumartímann verða samgo�?ngumálin að lagast, já bara komast á þann stað sem við getum o�?ll verið ánægð með. Vestmannaeyjar hafa upp á svo mikið að bjóða að við viljum að sem flestir geti notið þess með okkur og sótt okkar fallega bæ heim. �?að fylgja alltaf gallar góðum byggðarlo�?gum en ef maður ætlar að búa á stað sem manni þykir ofurvænt um, verðum við að geta litið framhjá þeim eins og mo�?gulegt er, ef ekki, þá verðum við að standa saman og gera eitthvað í málunum og virkja sem flesta með. �?að gerir kannski enginn neitt einn, en margir geta alltaf eitthvað og stundum heilmikið” segir Bryndís Guðjónsdóttir.
Ég syng bara eins og litlu ljósin okkar á Kirkjugerði:
Vestmannaeyjar, Vestmannaeyjar,
það er bærinn minn.
�?ar er gott að búa,
að honum vil ég hlúa.
Vestmannaeyjar, Vestmannaeyjar,
það er bærinn minn.
Í síðasta tölublaði Eyjafrétta var rætt við eldri kynslóðina um bæjarmálin í Eyjum. Hægt er að lesa viðtalið við Bryndísi Guðjónsdóttur í heild sinni ásamt skoðunum annarra Eyjamanna um hin ýmsu bæjarmál í nýjasta blaðinu. Ef þú ert ekki áskrifandi nú þegar, er hægt að gerast áskrifandi
hér.