130 milljónir á tveimur árum fyrir sjúkraflug
,,Heilbrigðismálin eru ekki í góðum málum. Árið 2014 voru 125 sjúkraflug sem kosta á bilinu 500 til 700 þúsund hvert flug. �?etta gera um 75 milljónir árið 2014. Árið 2015 voru 92 sjúkraflug, það gera um 52 milljónir fyrir árið. �?etta gera 130 milljónir á tveimur árum fyrir sjúkraflug. Ef þú deilir til dæmis þessari upphæð sem var árið 2014 niður á tólf mánuði eru þetta rúmar sex milljónir á mánuði. Væri ekki nær að hafa kannski tvo fasta lækna hérna með eina til tvær milljónir á mánuði hvor til þess að koma í veg fyrir allan þennan kostnað í sjúkraflug?
Síðan finnst mér alveg skelfilegt eftir að maður missti heimilislækn- inn sinn. Maður kemst alltaf að hérna, það er ekki málið en læknirinn sem þú lendir hjá hefur ekki hugmynd um þína sjúkraso�?gu. Ég hef ekkert út á læknana að setja sem koma hérna en það er leiðinlegt að lenda sjaldnast hjá sama lækninum. Maður er oft hræddur um o�?ryggi sitt þegar ástandið er svona og ég finn mikið til með unga fólkinu okkar að geta ekki eignast bo�?rnin sín hérna. �?urfa að bíða í Reykjavík í langan tíma oft eftir fæðingunni. Auðvitað viljum við o�?ll geta eignast bo�?rnin okkar í okkar heimabæ” segir Emma Pálsdóttir.
Í síðasta tölublaði Eyjafrétta var rætt við eldri kynslóðina um bæjarmálin í Eyjum. Hægt er að lesa viðtalið við Emmu Pálsdóttir í heild sinni ásamt skoðunum annarra Eyjamanna um hin ýmsu bæjarmál í nýjasta blaðinu. Ef þú ert ekki áskrifandi nú þegar, er hægt að gerast áskrifandi hér.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.