Pólitík og jákvæðni
Trausti Hjaltason bæjarfulltrúi birti þessa færlu á facebook síðui sinni og fengum við leyfi til að birta hana hér.
Eftir að hafa lesið þó nokkuð mikið af commentum á facebook og umfjöllun í fjölmiðlum um mál sem snúa að bæjarstjórninni. �?á vil ég á mjög góðlátlegan máta leiðrétta nokkrar staðreyndarvillur sem virðast vera að festa sig í sessi einfaldlega vegna þess að það er búið að segja þær svo oft á kaffistofunum eða á facebook þrátt fyrir að ekkert sé á bakvið fullyrðinguna. Einnig er hér smá hugleiðing almennt um pólitík og jákvæðni
Samgöngumál
-Eru á forræði ríkisins (ríkisstjórnarinnar/framkvæmdavaldsins og alþingis/löggjafarvaldsins). Bæjarstjórn getur því ekki ákveðið að fara í hinar og þessar framkvæmdir sem snúa að Herjólfi eða höfninni. Hún hefur ekki vald yfir málaflokknum.
– Ný ferja sem er búið að hanna hefur meiri flutningsgetu en núverandi Herjólfur, ný ferja ber bæði fleiri bíla og fleiri farþega.
– Nýtt skip getur siglt til �?orlákshafnar á sama hátt og núverandi Herjólfur.
– �?að er ekki enn búið að bjóða út nýsmíði nýrrar ferju, bæjarstjórn hefur gefið frá sér fjölmargar ályktanir, fundað mjööög oft um málið og notað síðan allar mögulegar leiðir til að þrýsta á að hafist verði handa við að smíða nýtt skip og smíðatími notaður til að lagfæra höfnina.
-Allar þær hugmyndir að breytingum á hafnargörðum sem kynntar hafa verið fyrir bæjarstjórn hafa við rannsóknir innlendra og erlendra sérfræðinga leitt í ljós að höfnin verði verri og lokist sökum sandburðar. Lenging hafnargarða leysir vandamálið hvað öldu og brot varðar, en ekki hvað sandburð og strauma varðar. Enn er leitað leiða til að lagfæra höfnina en ekkert er fast í hendi og engin lausn hefur enn verið fullrannsökuð. Einnig er enn leitað leiða hvað dýpkun varðar.
– Vonandi fer málið að hreyfast úr stað og við förum að sjá eitthvað ljós í þessu.
Heilbrigðismál
-Eru líkt og samgöngumál á forræði ríkisins. Líkt og í samgöngumálunum hefur bæjarstjórn öll bæði meiri-og minnihluti hefur verið skýr í þeirri afstöðu að hér skuli verða fæðingarþjónusta með aðgang að skurðstofuvakt. Fyrir því er barist og verður barist með öllum mögulegum ráðum. Margoft hefur verið bent á fjölgun sjúkrafluga og að það sé slæmt að vélin sé staðsett á Akureyri. �?etta ástand er ekki ásættanlegt.
Aldraðir og fatlaðir
– í síðustu fjárhagsáætlun bæjarins voru um 500 milljónir til viðbótar í málaflokk aldraða og fatlaðra til uppbyggingar á húsnæði. �?ær framkvæmdir eru í undirbúningi og ferli. �?etta tekur tíma en er i vinnslu.
Skipulagsmál
-Eldheimar skila í dag tekjum umfram gjöld og stendur reksturinn undir afskriftum á húsinu. Með öðrum húsið er að standa undir sér og vel það. Ásamt því að segja okkar mestu sögu og hafa um leið unnið til verðlauna á landsvísu og vera stoð undir öfluga ferðaþjónustu og öfluga skóla okkar.
– Fiskiðjan þar mun vonandi nýja spennandi háskólanámið okkar vera til húsa ásamt fjölmörgum aðilum sem verða þar með skrifstofurými t.d. �?ekkingarsetrið o.s. frv. Einnig er efsta hæðin til sölu og hafa aðilar sýnt henni áhuga . Vonandi kemst því fullt líf í byggingu sem var að niðurlotum komin og er á einum fallegasta stað bæjarins.
Annað í ferli flest ótengt bænum
– Verið er að klára frágang í miðbænum í kringum Bónus.
– Vigtarhúsið er til sölu og vonandi sjáum við starfsemi í því húsi fljótlega.
– Vinnslustöðin er að fara í miklar framkvæmdir sem styrkir það fyrirtæki vonandi mikið.
– Fjölmargar nýbyggingar eru í byggingu hér og þar í bænum eða eru að fara í byggingu.
– Ný fyrirtæki í nýsköpun hafa verið að opna á bryggjusvæðinu eða eru að fara að opna. Dæmi: Iða, Marhólmar, Hafnareyri, Háin.
– Fyrirtæki úr Reykjavík hafa verið að opna verslanir, útibú hér í Eyjum að undanförnu. Bónus, Landsbankinn, Mannvit, KPMG, Hampiðjan, Ísfell.
– �?essir listar eru ekki tæmandi.
Fleira jákvætt svona almennt
– Hér eru fyrirtæki í sjávarútvegi á heimsmælikvarða. Fjölmörg tækifæri eru til staðar að sækja enn frekar fram.
– Hér er gríðarlega öflugt félagsstarf sem eflir samfélagið mikið.
– Við eigum hér ein bestu íþróttalið á landsvísu.
– Hér eru haldnir einir bestu viðburðir landsins bæði á sviði íþrótta og menningar.
– Hér er ein fallegasta náttúra landsins, hreint loft og hreint vatn. Eitthvað sem flestir íbúar þessa heims eiga ekki möguleika á að njóta á hverjum degi.
– Íþróttasvæðið og aðstaða til íþróttaiðkunar er mjög góð. Glæsileg sundlaug, 18 holu golfvöllur á heimsmælikvarða, 3 innanhús íþróttavellir, 4 grasvellir í fullri stærð, 2 sparkvellir, Eimskipshöll o.s. frv.
– Hér erum við með marga veitingastaði á heimsmælikvarða ég fullyrði það.
– �?jónustustigið hér er mjög hátt miðað við stærð svæðisins. �?að þýðir að möguleikarnir til að sækja fram eru góðir.
Almennt um pólitík á landsvísu
– Almennt tel ég að fólk í pólitík sé nánast án undantekninga í pólitík til að láta eitthvað gott af sér leiða og til að geta haft áhrif til betri vegar. �?g upplifi það að þegar erfiðar ákvarðanir eru teknar er fólk að hugsa um hag heildarinnar og stundum eru slíkar ákvarðanir erfiðar og óvinsælar. Til lengri tíma litið eru þær hins vegar farsælar og til betri vegar fyrir samfélagið. Fólk í pólitík gerir líka mistök líkt og fólk í lífinu eða á vinnumarkaði. Hins vegar er oftast nær búið að ræða málin vel, fara yfir þau og menn eru að taka bestu mögulega ákvörðun miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir á hverjum tíma. Fólk er ekki að reyna að taka rangar ákvarðanir. �?g hugsa að ég geti nánast fullyrt að fólk taki ákvarðanir um að gera hlutina á þann máta sem ákveðið er, vegna þess að það telji að það sé besta leiðin eða besta lausnin. Fólk tekur því almennt ákvarðanir eftir bestu getu. Stundum þykir mér umærðan á landsvísu vera þannig að það sé bara skotleyfi á pólitíkusa vegna þess að þetta fólk valdi að fara í pólitík og sé þess vegna líklega illa innrætt og sé þarna til að græða pening eða berjast fyrir hagsmunaaðila, ég upplifi það alls ekki, nema síður sé. �?etta er að mínu mati líklega megin ástæða þess að ungt fólk fæst illa til að taka þátt í pólitík. �?að fólk sem ég hef kynnst er bara venjulegt fólk sem yfirleitt er vel inni í málunum og vill hafa áhrif til betri vegar. �?að er skemmtilegt að eiga samskipti við slíkt fólk og fyrir vikið er gefandi og skemmtilegt að vera í pólitík.
�?etta er gott í bili, næst skal ég fjalla aðeins um fjölskyldumál almennt. Verum jákvæð það gerir lífið svo miklu auðveldara og skemmtilegra

Nýjustu fréttir

Skyldumæting í höllina í dag!
Undirskriftalisti vegna ástandsins í Landeyjahöfn
ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.