Ruv.is greinir frá því í dag að hundruð ferðamanna afbóka þjónustu í Vestmannaeyjum þegar ekki er hægt að sigla frá Landeyjahöfn. �?etta segja eigendur ferðaþjónustufyrirtækja í Eyjum. Tekjur skerðist um allt að 60 prósent og nokkur fyrirtæki hafi þegar farið í þrot. Litlar sem engar líkur eru á að Landeyjahöfn verði opin um páskana. Höfnin er full af sandi og illa hefur gengið að dýpka. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sagði í fréttum í gær að Vestmannaeyingar séu búnir að fá nóg eftir áralöng vandræði með höfnina. Fyrirtæki í ferðaþjónustu séu á leið í þrot vegna ástandsins. Undir þetta tekur Hólmgeir Austfjörð, eigandi 900 Grillhúss í Eyjum. �??�?að eru erfiðleikar víða. Og þegar maður talar við kollega sína og fólk í ferðaþjónustu þá eru þyngsli á þessum tíma þegar skipið er ekki að ganga. Og þetta gerir mönnum erfitt fyrir. �?að er tekjuskerðing upp á 40-60% frá besta til versta mánaðar. Við viljum fá okkar skerf af kökunni þegar kemur að aukningu ferðamanna til að geta búið gott samfélag hérna. �?að er allt fyrir hendi. Allir staðir og þetta ætti allt að geta gengið upp ef samgöngurnar væru í lagi,�?? segir Hólmgeir. �??�?að þarf að gera úrbót. Og það strax.�??
Of löng sigling
�?egar Herjólfur getur ekki siglt í Landeyjahöfn, sem er hálftíma sigling, er siglt til �?orlákshafnar, sem tekur um þrjá klukkutíma. Svava Gunnarsdóttir, eigandi gistihússins Hamars, segir að svo löng sigling fæli ferðamenn frá. �??Hjá okkur öllum sem erum með gistiheimili og hótel í Vestmannaeyjum, veitingahús og annað, þá er þetta bara mjög slæmt. Vegna þess að fólk afbókar um leið og það þarf að leggja á sig sex tíma siglingu fram og til baka. Fólk leggur þetta ekki á sig,�?? segir Svava, og undir það tekur Hólmgeir.
�??Afbókanir byrja að berast fljótlega upp úr lokum ágústmánaðar. Bæði á hótelin og gistiheimilin og veitingastaðina þegar Herjólfur byrjar að fresta ferðum. �?á fáum við afbókanir sem skipta hundruðum.�?? Hólmgeir segir að nokkur fyrirtæki hafi lagt upp laupana síðan hann opnaði sinn stað árið 2010. �??�?g held að það séu þrír eða fjórir sem hafa hætt síðan ég opnaði. �?annig að þyngslin eru greinilega byrjuð að kikka inn,�?? segir hann og bætir því við að til greina komi að flytja veitingastaðinn upp á land. �??Ef ekkert verður að gert er maður knúinn til að fara í plan B. Svo einfalt er það.�?? Svava vill að gripið verði til aðgerða til að bæta ástandið. �??�?g vil að við smíðum nýtt skip og það verði skrifað undir það sem fyrst. �?á verður fólkið rólegra hérna og við höldum áfram samhliða því að reyna að dýpka höfnina.�??