Davíð Arnórsson ætlar að trúbadorast á 2. hæðinni á Tanganum miðvikudagskvöldið 23. mars næstkomandi. Davíð er snillingur á gítarinn og mun halda uppi frábæru fjöri fram eftir nóttu. Minnum á Happy hour á drykkjum milli 22 og 23. Davíð mun leiða mannskapinn inn í páskafríið og koma fólki í gírinn fyrir ballið í Höllinni – fyrir þá sem þangað ætla.