Forsendur dýpkunar alrangar
�??�?g benti á það strax árið 2010, að færi ölduhæð við Landeyjahöfn mikið yfir einn metra væri ekki hægt að dýpka. Okkur var þá bannað að tjá okkur um þetta�??, segir �?ttar Jónsson skipstjóri á dýpkunarskipinu Dísu. �??�?að er komið í ljós núna að þetta er rétt, alveg sama þó dýpkunarskipið sé stærra. Dýpkun utan við garðana hefur engu skilað og höfnin er full af sandi�??. �?ttar stýrði Dísu við dýpkun í höfninni frá 2010 og fram undir síðustu mánaðamót. Hann segir að nú sé Björgun ekki lengur með samning um verkið og því sé honum frjálst að tjá sig. �?að gangi hvorki né reki að dýpka með belgíska skipinu Galileo 2000 þegar ölduhæð sé komin aðeins yfir einn metra, þó það sé mun stærra en skipin sem íslenskir aðilar hafi yfir að ráða.
Galileo hentar ekki
Aðrir sem Fréttastofa hefur rætt við um málið benda á að belgíska skipið taki sandinn upp um rör sem sé undir miðju skipi. �?að verði því alltaf 50-60 metra frá görðunum. Galileo muni því heldur ekki geta hreinsað höfnina að innan eins og þurfi. Að auki séu Belgarnir ekki vanir aðstæðum eins og séu við Landeyjahöfn. Dýpkunarskipið Dísa taki sandinn upp um rör framantil á skipinu og komist miklu nær görðum. �?á fullyrða kunnugir að höfnin hafi aldrei verið að fullu hreinsuð og það hafi flýtt því að hún hafi fyllst nú.
�??Sandurinn kemst bara inn�??
�?ttar segir að svo mikill sandur hafi safnast utanvert í hafnarkjaftinum að sandurinn eigi enga leið nema inn í höfnina. �?að þurfi að hreinsa fjöruna báðum megin við og síðan sé hægt að hreinsa höfnina. Nú sé svo mikill sandur í höfninni að ferjan sem hönnuð hafi verið fyrir höfnina gæti engan veginn siglt þar inn. �?tboðsgögn um smíði nýju ferjunnar eru frágengin og hafa verið á borði Innanríkisráðherra í tæpa tvo mánuði. Spurður hvort hægt sé að hreinsa höfnina með Dísunni segir �?ttar já.
Alrangar forsendur
�?ttar segir að mikil dýpkun í fyrrahaust fyrir utan garðana hafi engu skilað. �?ar sé botninn orðinn eins og áður. Peningum til þess verks hafi verið illa varið. �??Og þetta stendur með ölduhæðina. Við buðum ekki í þetta verk sem Belgarnir fengu, af því forsendurnar voru alrangar. Í útboðsgögnunum var kveðið á um dagsektir ef menn dýpkuðu ekki í ölduhæð undir tveimur metrum. Við gátum engan veginn séð neinn grundvöll fyrir slíkum samningi�??. Á myndinni sjást Galileo og Dísa við dýpkun seint í febrúar.
ruv.is greinir frá.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.