Gefur ekki mikið fyrir fullyrðingar skipstjórans á Dísu
�??�?að hafa mörg viðtölin verið birt um Landeyjahöfn fullar af rangfærslum og mörg eru líklega enn óbirt. En í fyrrdag birtist á rúv.is og síðar eyjafréttum viðtal við dýpkunarskipstjóra sem verður að segjast eins og er nokkuð ríkt af rangfærslum,�?? segir Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri siglingasviðs Vegagerðarinnar um þær fullyrðingar �?ttars Jónssonar, skipstjóra á dýpkunarskipinu Dísu, að fari ölduhæð við Landeyjahöfn mikið yfir einn metra sé ekki hægt að dýpka. �??�?g benti á það strax árið 2010. Okkur var þá bannað að tjá okkur um þetta,�?? sagði �?ttar í viðtali við R�?V sem birtist síðar á eyjafréttum.is.
Sigurður Áss segir að dýpkun í Landeyjahöfn ráðist af mörgum þáttum, eins og ölduhæð, öldulengd, vindi, dýpi, dýpkunarskipi og skipstjóra. �??Allir þessir þættir þurfa að ganga upp svo unnt sé að dýpka. �?að stenst þó enga skoðun að aðeins sé hægt að dýpka í Landeyjahöfn ef ölduhæð er um einn metri eins og dýpkunarskipstjórinn fullyrðir á rúv.is. Aðstæður í Landeyjahöfn eru erfiðar og það hefur tekið skipstjóra tíma að læra inn á þær. Sumir eru fljótir til og ná að dýpka í um 2m ölduhæð á meðan aðrir þurfa lengri tíma og sumir ná þessu aldrei. Enda reyna aðstæður í Landeyjahöfn á þolrif manna. Vonandi munu Belgarnir ná þessu og mér heyrist á þeim skipstjórum sem hafa farið um borð og fylgst með dýpkuninni að skipið virðist ráða við verkefnið þannig að þegar menn læra á aðstæður mun þetta ganga betur.
Hvað varðar fullyrðingar viðkomandi um að hann hafi verið í þagnarbindindi þá ganga þær heldur ekki upp því hann hefur oft tjáð sig um þetta mál. Líka þegar Björgun var með samninginn.
Í viðtalinu við skipstjóran er einnig fullyrt að dýpkunin í haust hafi engu skilað en það fjarri lagi. �?egar málið er skoða þá sést að lítið er af sandi fyrir framan hafnamynnið og dýpið á rifinu hefur ekki verið svona mikið síðan höfnin var byggð. �?annig að það er margt sem bendir til þess að dýpkunin í haust hafi skilað árangri.
Mestu vandræðin sem við erum að glíma við núna eru vegna sands innan hafnar sem er að hluta til kominn vegna þess að dýpkunarskip fyrri verktaka átti erfitt með að dýpka rennu og svo vegna foksands. Hvort tveggja hef ég trú á að leysist. Landgræðslan finnur lausn á foksandinum og dýpkun rennu leysist vonandi með dýpkunarskipi Belgana en það ræður betur við þá dýpkun en fyrri dýpkunarskip.
�?ví verður þó ekki neitað að bæði dýpkunarskip Björgunar og Belgana eru gömul annað um fimmtugt og hitt um fertugt. Markaðurinn hér lítill og fjarri öðrum og einokun í gangi. Erfitt og dýrt er að bjóða ný skip nema að verðin í dýpkun verða há. �?ví er geta málin þróast með þeim hætti að hagkvæmast sé fyrir íslenska ríkið að eignast dýpkunarskip. Skip sem er nýrra og ræður betur við aðstæður í Landeyjahöfn líkt og Danir eru með fyrir hafnirnar við strendur Jótlands og við hér áður fyrr,�?? segir Sigurður Áss.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.