Eins og flestir vita voru framin hryðjuverk í Brussel síðastliðinn þriðjudag. Fyrst var sprengt tvær sprengjur á aðal flugvellinum í Brussel. Sprengjurnar á flugvellinum sprungu með aðeins nokkurra mínútna millibili. �?nnur varð kl. 8 að staðartíma, 7 að íslenskum tíma, og hin skömmu síðar. Báðar sprengjurnar voru sprengdar á svæði flugstöðvarinnar þar sem fólk innritar sig í flug. Um þrjátíu mínútum síðar sprakk svo sprengja á Maelbeek-neðanjarðarlestarstöðinni, skammt frá helstu byggingum Evrópusambandsins, í hjarta Brussel.
Tala látina er komin í 31 og að minnst 270 manns særðir.Við hjá Eyjafréttum ræddum við Dís Sigurgeirsdóttir, Eyjakonu sem býr og starfar í Brussel skömmu eftir sprengingarnar.
,,Já þetta eru skelfilegir atburðir. �?að fór vissulega um mig hrollur þegar ég fékk þessar fréttir í morgun en Gabríela dóttir mín átti að fara í loftið frá Íslandi til Brussel um svipað leyti og fyrstu sprengingarnar sprungu á flugvellinum í Brussel. Sem betur fer voru þau ekki komin í loftið og allir kallaðir aftur inn í flugstöð eftir nokkra bið út í vél. Eins mikið og ég sakna hennar er ég afskaplega fegin að hún muni ekki lenda í Brussel í dag” sagði Dís Sigurgeirsdóttir, Eyjakona sem býr og starfar í Brussel þar sem tugir fórust og hundruðir slösuðust alvarlega í hryðjuverkaárásum á flugvellinum og brautarstöð í borginni síðastliðinn þriðjudag.
Eins og fyrr segir býr Dís í Brussel og hefur gert í átta ár. Hún er sérfræðingur á sviði dóms- og innanríkismála og starfar nú hjá FMO, uppbyggingarsjóði EES. �?au eru þrjú í heimili. Maðurinn hennar er Jónas Jóhannsson, lögfræðingur hjá lögfræðistofunni Lagastoð og fyrrum héraðsdómari í Reykjavík og sonurinn Jóhann Lárus. Dís var ekki langt undan þegar seinni sprengjan sprakk. ,,�?að fór um mig hrollur þegar sprengjan sprakk í neðanjarðarlestarstöðinni hér rétt út á horni. �?g fer í gegnum þessa stöð á hverjum morgni og var svo heppinn að vera óvenju snemma á ferðinni þennan morgun vegna verkefnis sem ég er að keppast við að klára fyrir skilafrest” sagði Dís. Byggingum EFTA og uppbyggingarsjóðs EES var lokað en höfðu verið opnar aftur þegar Eyjafréttir höfðu samband við Dís. ,,Við getum farið út í hádeginu og fengið okkur eitthvað að borða. �?g mun klára minn vinnudag og líklega taka leigubíl heim þar sem búið er að loka öllum almenningssamgöngum. �?g er að stökkva út núna og fá mér eitthvað í gogginn. �?að er ekki góð tilhugsun að vera hér á ferðinni með sprengjuóða einstaklinga og þyrlur sveimandi yfir höfðum, en garnagaulið er að verða háværara en sláttur þyrluspaðanna svo það er ekki um annað að ræða” sagði Dís og bætti við. ,,Til að bæta gráu ofan á svart þá er stjúpdóttir mín að vinna í skóla hér í borg þar sem að sprengja fannst og var sprengd af lögreglu áðan. �?llum er haldið innandyra og veit hún ekki hvenær þau fá leyfi til þess að fara heim. �?etta eru ekki skemmtilegir tímar hér í Brussel” sagði Dís að lokum.