Á fundi bæjarráðs í hádeginu lá fyrir erindi frá Ferðamálasamtökum Vestmannaeyja (FMV) þar sem óskað er eftir styrk að hluta til að halda borgarafund um málefni Landeyjahafnar. Í erindinu kom fram það mat samtakana að umræða um Landeyjahöfn sé gjarnan byggð á getgátum og litlum eða jafnvel röngum upplýsingum.
FMV segir því mikilvægt að upplýst umræða fari fram um höfnina og þá ferju sem á að smíða og hafa því samtökin ákveðið að standa fyrir borgarafundi með það að markmiði að upplýsa Eyjamenn um stöðu hafnarinnar, smíðina á nýrri ferju og hvað hægt sé að gera þar til að höfn og ferja eru farin að nýtast sem heilsárs samgöngumannvirki.
Bæjarráð fagnaði framtakinu og hvetur eindregið til þess að slíkur fundur fari fram svo fljótt sem verða má. Ráðið lýsir sig viljugt til að styðja við ferðamálasamtökin með öllum ráðum og þar með að veita samtökunum fjárhagslegan stuðning vegna þessa verkefnis.
Bæjarráð fól bæjarstjóra framgang málsins.