Greining Íslandsbanka spáir 29% aukningu í fjölda ferðamanna til Íslands á árinu 2016. Að teknu tilliti til meðal dvalartíma ferðamanna eru hér á landi tæplega 30 þúsund ferðamenn á degi hverjum allt árið. �?etta kemur fram í nýrri ferðaþjónustuskýrslu Greiningar og Fyrirtækjasviðs Íslandsbanka. Bjarnólfur Lárusson, viðskiptastjóri á Fyrirtækjasviði og Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka munu kynna skýrsluna á hádegisfundi í Eldheimum kl 12.00 fimmtudaginn 31.mars.
Að kynningu lokinni verða pallborðsumræður þar sem Kristín Jóhannsdóttir, safnstjóri Eldheima og Páll Marvin Jónsson, formaður Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja munu taka þátt ásamt þeim Bjarnólfi og Ingólfi en �?órdís �?lfarsdóttir útibússtjóri Íslandsbanka í Vestmannaeyjum mun stýra umræðum. Sérstök áhersla verður lögð á samgöngumálin í umræðum sem hafa bein áhrif á komu ferðamanna til Vestmannaeyja.
�?etta er í annað sinn sem Íslandsbanki gefur út skýrslu um ferðaþjónustuna sem er ein af mikilvægustu atvinnugreinum þjóðarinnar. Undanfarin ár hefur verið mikill vöxtur í greininni og ef fram heldur sem horfir verða á Íslandi um 16 ferðamenn á hvern ferkílómetra miðað við spá Greiningar um fjölda ferðamanna. Tækifærin og áskoranir eru margar og Íslandsbanki leggur mikla áherslu á fræðslu fyrir viðskiptavini og að starfsmenn miðli af sinni sérþekkingu til þeirra. �?að er von okkar að skýrslan reynist gagnleg viðbót við þá þekkingu sem fyrir er í þessari öflugu atvinnugrein.
Frétt frá Íslandsbanka.