Vandaður handþvottur ver þig gegn smiti
Handþvottur og almennt hreinlæti er áhrifarík og mikilvæg vörn. Snerting er algengasta smitleiðin milli manna, við erum allan daginn í beinni snertingu við umhverfi okkar og hendur okkar komast í návígi við ótal varhugaverð svæði, meðal annars þegar við heilsumst með handabandi. �?að er staðreynd að fólk er almennt ekki nógu duglegt að þvo sér um hendurnar og því er aldrei of oft minnt á mikilvægi þess.
Kvef, flensa og bráðsmitandi meltingarfærasýkingar berast m.a. á milli manna með beinni eða óbeinni snertingu og eru sífellt að reyna að ná sér á strik í umhverfinu. Varhugaverðir snertifletir eru auðvitað margir en þar má nefna þá algengustu, handlaugar, salernissetur, handföng á innkaupakörfum og kerrum, stigahandrið, hurðahúnar, stólarma, lykla, lyklaborð, penna, síma, ljósarofa, handföng á líkamsræktartækjum í ræktinni og svo mætti lengi telja. Naglalökk og gervineglur eru vinsælir dvalarstaðir sýkla, einnig skartgripir m.a. hringir.
Mjög mikilvægt er að þvo sér hendurnar fyrir og eftir mat, áður en matreiðsla hefst og áður en farið er inn til sjúklinga, eldri borgara eða heim til nýbura. Aldraðir, sjúklingar á sjúkrahúsum og nýburar eru mjög viðkvæmir fyrir sýkingum og rétt að meta mikilvægi þess að heimsækja þá ef veikindi eru í gangi í umhverfi þínu eða hjá þér sjálfum.
Allar snertingar við dýr, blóð, líkamsvessa eða sár, bæði manns eigin og annarra krefst þess að sjálfsögðu að hendur séu þvegnar strax!
Hér fylgja með góðar leiðbeiningar frá sóttvarnalækni.
Skola hendurnar fyrst með rennandi volgu vatni til að fjarlægja sýnileg óhreinindi.
Fá sér smá sápu og nudda vel samkvæmt leiðbeiningunum, gefa sér góðan tíma.
Skola vel öll svæði og að lokum þurrka vel.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.