�?höpp vegna hálku og útafakstur
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu um páskana og má rekja bæði óhöppin til hálku. Í fyrra tilvikinu var um að ræða óhapp á Hamarsvegi þar sem ökumaðurinn missti stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti á ljósastaur. Ekki urðu alvarleg slys á fólki í óhappinu en bifreiðin var óökufær á eftir. Síðdegis á annan í páskum var lögreglu tilkynnt um útafakstur á Dalavegi en þarna hafði ökumaðurinn misst stjórn á bifreið sinni þannig að bifreiðin lenti utanvega og valt eina veltu. �?kumaðurinn, sem var einn í bifreiðinn, kvartaði yfir eymslum eftir óhappið. Bifreiðin var óökufær eftir óhappið.
Alls liggja fyrir fimm kærur vegna brota á umferðarlögum eftir liðna viku. Í fjórum tilvikum var um að ræða ólöglega lagningu ökutækja og í einu tilviki akstur án ökuréttinda.

Nýjustu fréttir

Afmælishátíð Landhelgisgæslunnar í Eyjum frestað
Litla-Hraun jafnað við jörðu
Segja mismunun felast í reglum um vinnuskólann
Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland 
Terra fær ekki samþykktar breytingar á gjaldskrá
ÍBV og FH skiptu með sér stigunum
Stærstu viðskiptafréttir í sögu Vestmannaeyja
Pétur Bjarna, Eyjamaður og sjávarútvegsfræðingur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.