Mánaðarlaun í ferðakostnað
Hver eru rökin fyrir því að við Eyjamenn verðum að greiða stórfé á hverju ári aukalega til að komast á milli tveggja staða innan þjóðvegakerfis Íslands? Hver eru rökin fyrir því að fimm manna fjölskylda í Eyjum skuli verða að borga 274.800 til 296.000 kr. (eftir stærð bíls) fyrir að komast tíu sinnum á ári upp á land þegar siglt er eftir þjóðveginum milli lands og Eyja? Hver eru rökin fyrir því að aðrar reglur gilda um þjóðveginn milli lands og Eyja en alla aðra þjóðvegi og göng landsins?
�?að er nefnilega minn skilningur á rekstri Herjólfs að hann eigi að vera þjóðvegur okkar Eyjamanna og gera okkur fært að komast uppá meginlandið og til baka. Fyrir þá þjónustu greiðum við fyrir með sköttunum okkar en reksturinn á ekki að vera gróðafyrirtæki einhverra vildarvina.
Hver eru rökin fyrir því að skipafélag skuli græða hundruði milljóna á því að sigla með Eyjamenn og gesti milli lands og Eyja í skjóli einokunar?
Hver eru rökin fyrir því að samningur milli Vegagerðarinnar og skipafélagsins er trúnaðarmál? Hefur því verið beint til Umboðsmanns alþingis að hann skoði það? �?g hef nefnilega á tilfinningunni að enginn þingmaður kjördæmisins eða ráðherra vilji rugga bátnum með að láta skoða það eða ganga hart fram í því að fá þessa samninga uppá borðið því óskabarnið greiðir örugglega ríflega í kosningasjóði þeirra.
Hver eru rökin fyrir því að yfir háannatímann skuli ekki siglt eins og �??þarf�?? og bætt við ferðum ef þess þarf og siglt með gáma, tengivagna, rútur,og stór tæki eina ferð á hverri nóttu?
Hver eru rökin fyrir að það kosti 1160 kr. að flytja eitt reiðhjól á milli lands og Eyja og fyrir bifhjól skuli vera rukkað 2320 kr?
Af hverju þá ekki 1000 kr. fyrir hverja tösku, bakpoka eða ósamstætt skópar? Og hver eru rökin fyrir því að það skuli kosta 3420 kr. fyrir lítinn bíl aðra leiðina (4480.kr. fyrir stóran)? �?RJ�? �?�?SUND FJ�?GUR HUNDRUÐ OG TUTTUGU KR�?NUR fyrir einn lítinn bíl. Hver reiknaði þetta út, var það skipafélagið, og hver í ósköpunum fann út að það kosti hið sama að flytja eitt stykki barn til �?orlákshafnar og eitt reiðhjól eða 1160 kr.?
Og reiknimeistarar skipafélagsins fundu það út að til þess að fá 400.000.000 (FJ�?GUR HUNDRUÐ MILLJ�?NIR) í hagnað þá þyrfti fargjald fyrir einn fullorðinn að vera 3420 kr. �?RJ�? �?�?SUND FJ�?GUR HUNDRUÐ OG TUTTUGU KR�?NUR og þetta er allt gert með fullu samþykki og vilja Vegagerðarinnar og við Eyjamenn höldum bara áfram að beygja okkur og bugta.
Nei nú er mál að linni og við tökum á þessu máli af sanngirni. �?ar sem við höfum greitt okkar skatta og þar með kostnaðinn við þennan rekstur þá er það mitt mat að sanngjarnt verð fyrir fólksbíl sé 1.000 kr. og frítt fyrir bílstjóra og alla farþega í bílnum, aðrir farþegar borgi 500 kr.

Nýjustu fréttir

Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust
Tæplega hundrað nýta gjaldfrjálsa leikskólatíma
Rafmagnslaust: Stór truflun í kerfinu – uppfært
Annríki hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja í fárviðri
Hjalti læknir og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Stormur á Stórhöfða
Sterkt samfélag byggir á trausti og samvinnu
Mikilvægasta skipið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.