Nemendur í nýsköpunaráfanga Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum taka þátt í vörumessu í Smáralind 10. apríl næstkomandi. �?etta eru 14 ungir frumkvöðlar sem hafa verið að læra um vöruþróun og rekstur fyrirtækja. �?au hafa stofnað þrjú fyrirtæki og hvert þeirra hefur framleitt vöru/r sem þau munu kynna og selja í Smáralind. �?etta er hluti af verkefninu Ungir frumkvöðlar á Íslandi (JA Iceland) sem er kennt víða um heim. Í smáralind getið þið kynnt ykkur framtíðarkynslóð frumkvöðla á Íslandi þar sem rúmlega 300 nemendur hafa stofnað 60 lítil fyrirtæki og munu þau kynna og selja vörur sínar 9. og 10. Apríl. Skólarnir sem taka þátt í þessu verkefni ásamt FÍV eru FÁ, Versló, FG, FB, MS, MK og MH.
Hvetjum við alla til að kynna sér hvað nemendurnir eru að gera og sérstaklega bjóðum við Eyjamenn velkomna að skoða vörurnar hjá fyrirtækjnum sem FÍV nemendur hafa búið til. Hluti þeirra tengist náttúru Vestmannaeyja.