�?egar fjallað er um þjónustu við íbúa í sveitarfélagi er ekki sanngjarnt að taka eitt ákveðið atriði út og bera saman við það besta sem gert er í einu öðru sveitarfélagi. �?að ber að líta á hlutina í stærra samhengi. Einnig eru það fjölmargir aðrir þættir en þjónusta sveitarfélagsins sem gera samfélagið að góðum kosti fyrir fjölskyldufólk.
Almennt tel ég það mjög góðan valkost fyrir fjölskyldufólk að búa í Vestmannaeyjum. Hér eru 30 ástæður �?�:
1. Stuttar vegalegndir sem þýðir betri nýting á tíma.
2. Lægra fasteignaverð en í Reykjavík
3. �?flugt og fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf
4. Frítt í sund fyrir börn
5. Góð þjónusta menntastofnana frá leikskólaaldri til háskólaaldurs. Leikskólar, grunnskóli, framhaldsskóli, FabLab, Viska og háskólanám í boði í Vestmannaeyjum.
6. Niðurgreiddur matur í grunnskólanum
7. Niðurgreiddur matur í leikskóla
8. Stuðningur við dagforeldra
9. Niðurgreiðslur til foreldra með börn í daggæslu frá 9 mán aldri
10. Heimagreiðslur til foreldra
11. Góð íþróttaaðstaða: Innisundlaug, útisvæði fyrir börn, 3 innanhús íþróttavellir, 4 grasvellir, 2 sparkvellir, Eimskipshöll, 18 holu golfvöllur, folfvöllur væntanlegur, Týsheimilið.
12. �?flugt félagastarf fyrir fullorðna
13. Íþróttaakademían í Grunnskóla Vestmannaeyja
14. Íþróttaakademían í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum
15. 80-85% niðgreidd leikskólagjöld
16. Heimsklassa veitingastaðir
17. Lækkuð fasteignagjöld á þessu ári
18. Lægra útsvar
19. Frítt fyrir námsmenn á bókasafnið
20. Gæsluvöllurinn opinn þegar sumarlokun er á leikskólum
21. Reglulegir viðburðir fyrir fjölskylduna t.d. Goslok, �?rettándi, �?jóðhátíð, Pæjumót, Shellmót, safnahelgi
22. Fjölbreytt söfn: Sagnheimar, Eldheimar, Sæheimar
23. Ung fólk hefur áhrif, sbr. Vilt þú hafa áhrif
24. �?flugt starf á Frístund í �?órsheimilinu
25. �?flugt starf á Rauðagerði
26. Hátt þjónustustig í verslun og þjónustu
27. Lágt verð í sund fyrir fullorðna
28. Góð þjónusta fyrir börn með sérþarfir í skólum
29. Náttúruparadís
30. Betri nýting á tíma í hádegi
�?essi listi er alls ekki tæmandi.
Trausti Hjaltason formaður fræðsluráðs