ÍBV endar í 4. sætinu | Mætir Gróttu í 8-liða úrslitum
ÍBV tryggði sér í gær heimaleikjarétt í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla eftir jafntefli á einum erfiðasta útivelli landsins í Mosfellsbæ. Jafnt var í hálfleik 15:15 en leiknum sjálfum lauk 28:28.
Með sigri hefði ÍBV tekið sæti Aftureldingar í 3. sætinu og mætt FH-ingum í 8-liða úrslitum en í staðinn mætir liðið Gróttu sem endaði í fimmta sætinu. Hefði ÍBV tapað leiknum myndi liðið spila við Aftureldingu í 8-liða úrslitunum og hefja einvígið á útivelli.
Vörn ÍBV var ekki til staðar í fyrri hálfleik og var markvarslan að sama skapi engin. Í síðari hálfleik birti þó yfir leiknum þrátt fyrir slaka byrjun. ÍBV hafði tveggja marka forystu þegar stutt var eftir en náði þó ekki að halda út.
Theodór Sigurbjörnsson var markahæstur í liði ÍBV með tíu mörk en á eftir honum kom Kári Kristján Kristjánsson með fimm og þeir Andri Heimir Friðriksson og Agnar Smári Jónsson með fjögur. Stephen Nielsen varði tólf skot, tíu þeirra í seinni hálfleik en Kolbeinn Aron Arnarson varði fjögur.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.