ÍBV tapaði með fjögurra marka mun gegn Fram í Eyjum í dag. Liðið hefði getað tryggt sig áfram í undanúrslitin með sigri eftir flottan sigur á miðvikudaginn.
Fram virkaði þó sterkari aðilinn allan leikinn og keyrðu vel í bakið á ÍBV eftir mörk liðsins.
Ester �?skarsdóttir var markahæst með átta mörk en Erla Rós Sigmarsdóttir varði átján skot í markinu.
Oddaleikur liðanna fer fram á mánudaginn í Safamýri klukkan 18:00.