�?eir eru nokkrir sem ganga reglulega á Heimaklett og sumir daglega. �?ar fyrir utan fjölgar þeim á hverju ári sem vilja njóta útsýnisins af toppi hansog því er átroðningur stundum mikill og þá sérstaklega á sumrin þegar Landeyjahöfn er opin og margir ferðamenn koma til Eyja. Síðustu ár hafa að meðaltali tíu til fimmtán manns gengið á Heimaklett á hverjum degi, stór hluti göngufólksins eru ferðamenn og margir þeirra útlendingar sem segjast hafa heyrt mergjaðar sögur af stórkostlegu útsýni þaðan í allar áttir.
Aukin umferð go�?ngufólks hefur orðið til þess að víða sér á uppgo�?nguleiðinni og því hafa Vinir Heimakletts fengið bæinn í lið með sér til að reyna að sporna við því að skemmdir verði meiri en orðið er. Inni á Eiði, við uppgo�?nguna á Klettinn er gul kista með fræ- og áburðarpokum og er upplagt fyrir þá sem leggja á Heimaklett að stinga þremur til fjórum pokum í bakpokann sinn áður en upp er haldið. �?egar komið er upp fyrir efri stiga er víða hægt að dreifa úr áburðinum og er go�?ngufólk sérstaklega beðið um að dreifa honum vel í og við go�?nguslóðann. Auk þess hafa Vinirnir lokað hluta slóðans, er þetta hlutinn sem er einna verst farinn og er fólk beðið um að virða það og ganga meðfram honum á meðan reynt er að græða hann upp og laga. �?á ætlar Birgir Ólafsson að hefja smíði á lokaáfanga stigans á Neðri Kleifum sem mun ná frá neðri stiga upp að þeim efri, byrjað var á smíði hans á síðasta sumri. Mun hann minnka verulega álagið á gróðurinn á þessum stað og þegar stigasmíðinni er lokið og go�?ngufólk farið að nota hann þá verður hægt að bera áburð og sá í svæðin í kring.
�?að skal tekið fram að bæjarstarfsmenn hafa einnig sett kistu með fræ- og áburðarpokum inn í Herjólfsdal og er hún staðsett þar sem veitingatjaldið er á þjóðhátíð. �?ar á það sama við og með Heimaklett, go�?ngufólk sem leggur leið sína upp á Eggjar og víðar á Dalfjallið er beðið um að taka áburðarpoka með sér í go�?nguna og dreifa úr á slóðann.