Lundinn settist upp þann 19. og þar með byrjaði sumarið hjá mér, tveimur dögum fyrir sumardaginn fyrsta. �?g er óvenju spenntur fyrir þessu lunda sumri, enda var bæjarpysjan í Vestmannaeyjum á síðasta ári hátt í 4000 pysjur og því gríðarlega spennandi að sjá, hvort að sá frábæri viðsnúningur komi með framhald í ár. Ekki minnkaði bjartsýnin við að heimsækja nokkrar eyjar fyrir norðan land s.l. sumar og sjá, hversu gríðarlega sterkur lundastofninn á Íslandi er. Ekki nýtti ég mér veiðidagana í eyjum s.l. sumar frekar en síðustu ár, en hef eftir þeim sem fóru til veiða að töluvert hafi verið af ungfugli í veiðinni, sem klárlega réttlætir það, að einhverjir dagar verði leyfðir í sumar, en ég er hins vegar sammála þeirri breytingu að þeir verði þá ekki fyrr en í ágúst. Toppurinn á árinu hjá mér var klárlega ferð til Grímseyjar s.l. sumar, þar sem ma. menn fengu að ná sér í soðið. Merkilegt nokkuð, þá veiddust einir 4 merktir lundar í ferðinni og hefur komið í ljós, að 2 þeirra voru merktir á sínum tíma í Vestmannaeyjum. �?annig að þar með er það sannað endanlega að mínu viti að lundinn flakkar um eða færir sig til eftir ætinu.
Forsetaframboð eru mikið í umræðunni að undanförnu. Sjálfur hef ég ma. fengið nokkrar áskoranir, sem sumar hverjar hafa komið mér nokkuð á óvart. Reyndar sagði ágætur vinur við mig um daginn, að af ég færi í framboð, þá myndi hann kjósa mig en bætti svo við eftir smá umhugsun: Nei heyrðu, þá verður þú að fara frá eyjum, en það vill ég ekki, þannig að ég er hættur við að kjósa þig. �?ví verður hins vegar ekki neitað að laun upp á rúmar 2 milljónir á mánuði, einka bílstjóra, ferðalög út um allan heim, veisluhöld er kannski aðeins meira freistandi heldur en að standa niðri í beituskúr allt árið, eða veltast í öldunni við eyjar. �?g hef því ákveðið eftir að hafa ráðfært mig við stórfjölskylduna, að taka áskorun frá fjölmörgum aðilum hér í bæ og af fastalandinu, um að bjóða mig hér með EKKI fram til forseta Íslands.
Gleðilegt sumar allir.