SAF lýsa yfir þungum áhyggjum vegna yfirvinnubanns flugumferðastjóra
ISAVIA hefur tilkynnt að vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra verði þjónusta á Keflavíkurflugvelli takmörkuð við sjúkra- og neyðarflug frá kl. 21.00 í kvöld til kl. 07.00 í fyrramálið. Ástæðan er að tveir flugumferðarstjórar sem áttu að vera á vakt í nótt eru veikir og vegna yfirvinnubanns fást ekki flugumferðarstjórar til afleysinga. Ljóst er þessar aðgerðir munu hafa áhrif á 24 flug til og frá landinu með þeim afleiðingum að rúmlega 4000 farþegar komast ekki lönd né strönd. Samtök ferðaþjónustunnar telja óásættanlegt að ferðaþjónustunni og almannahagsmunum sé stefnt í voða með þeim hætti sem raun ber vitni. �?að gengur ekki upp að fámennir hópar launþega geti valdið jafn miklum vandræðum og haft ferðaþjónustuna og samgöngur til og frá landinu í hendi sér í kjarabaráttu sinni. Ímynd og orðspor Íslands sem áfangastaður fyrir ferðamenn er í húfi og mikilvægt að stöðugleiki ríki í samgöngum. �?á verður að eyða allri óvissu fyrir ferðaþjónustuna og landsmenn alla hið fyrsta. Samtök ferðaþjónustunnar skora á samningsaðila beggja vegna borðsins að ná sáttum þannig að ekki komi til frekara tjóns fyrir íslenskt samfélag.

Nýjustu fréttir

ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
Eyjakonur mæta taplausu liði ÍR í dag
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.