Til stendur að flytja mjaldrarna Little Grey og Little White með flugvél Cargolux til Íslands þann 16. apríl nk. Í framhaldinu stóð til að aka þeim með trukkum í Landeyjahöfn þar sem flytja átti þá með nýjum Herjólfi yfir í sín nýju heimkynni í Eyjum.
Nú er ljóst að ný ferja verður ekki komin í áætlun í tæka tíð fyrir þann flutning, þrátt fyrir að vera tilbúin í Póllandi. En það sem verra er þá lítur út fyrir að tæpt verði hvort Landeyjahöfn verði fær fyrir flutninginn. En sem kunnugt er þá er dýpið lítið í hafnarminninu.
Allt er að verða klárt í Eyjum fyrir komu mjaldrana. Nú er hvíslað um það í Eyjum hvort að til standi að flytja mjaldrana í gegnum Þorlákshöfn eða hvort til standi að fresta fluginu frá Sjanghæ, ef að ekki verði búið að opna höfnina í Landeyjum.
Merkilegt er í þessu öllu er að óvissan er ekki um að flytja mjaldrana á milli heimsálfa, heldur er það síðasti leggurinn, leggurinn milli lands og eyja sem er óvissu háður. Þetta er ekki bara veruleiki mjaldra frá Kína, heldur er þetta veruleiki sem Eyjamenn búa við dag frá degi.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.