Á laugardaginn næstkomandi verður haldin glæsileg Honda sölusýning hjá Bragganum sf sem er umboðsaðili Bernhard ehf í Vestmannaeyjum.
�?ar verður hægt að skoða og reynsluaka öllu því nýjasta frá Honda og gera góð kaup á bílum frá einum áreiðanlegasta bílaframleiðanda heims.
Sem dæmi má nefna CRV í bæði bensín og dísel útfærslum og HRV Executive og Elegance útfærslum en HRV hefur fengið fádæma góðar viðtökur frá því hann var kynntur til sögunnar.
Á sýningarsvæðinu verður fjöldi notaðra bíla og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, en þar verða glæsilegir notaðir bílar sem jafnvel hafa verið nýskráðir á árinu 2016.
Vonast er til að sem flestir geti lagt leið sína í Braggann en þar verður tekið vel á móti sýningargestum með léttum veitingum og eru allir velkomnir.
Opið verður frá klukkan 11:00 til 16:00