ÍBV hafði betur gegn Stjörnunni
Eyja­menn sigruðu Stjörnu­menn með sjö marka mun í kvöld, 30:23, í Vesta­manna­eyj­um í 5. um­ferð Olís-deild­ar karla í hand­knatt­leik. ÍBV lagði grunn að sigr­in­um í fyrri hálfleik þar sem liðið yf­ir­spilaði Stjörnu­menn sem áttu eng­in svör, hvorki í vörn né sókn. Mbl.is greindi frá.
Eyja­menn voru yfir með 17 mörk­um gegn 10 að lokn­um fyrri hálfleik. Róður­inn var því þung­ur fyr­ir gest­ina í seinni hálfleik. Theo­dór Sig­ur­björns­son og Kári Kristján Kristjáns­son skoruðu fimm mörk­in hvor í fyrri hálfleik.
Gest­irn­ir byrjuðu seinni hálfleik­inn af krafti og litu út fyr­ir að geta komið til baka. Sú end­ur­koma var ekki lang­líf þar sem þeir duttu aft­ur í sama áhug­leysið og í fyrri hálfleik.
Loka­töl­ur eins og áður seg­ir, 30:23. Theo­dór Sig­ur­björns­son og Agn­ar Smári Jóns­son skoruðu mest fyr­ir ÍBV, Theo­dór skoraði átta og Agn­ar Smári einu færra. Starri Friðriks­son var at­kvæðamest­ur Stjörnu­manna með sex mörk.
ÍBV er þar komið aft­ur á sig­ur­braut eft­ir slak­an leik gegn FH um síðustu helgi.

Nýjustu fréttir

Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.