Á föstudaginn síðastliðinn var Goslokahátíðin formlega sett í blíðskaparveðri á Skansinum. Dagskráin var einnig tileinkuð 100 ára kaupstaðarafmæli Vestmannaeyjabæjar.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsáðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- sveitastjórnarráðherra, Eliza Reid forsetafrú, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, Arnar Sigurmundsson f.h. afmælisnefndar og Guðmundur Örn Jónsson, sóknarprestur, ávörpuðu viðstadda.
Þá léku Lúðrasveit Vestmannaeyja, Sverrir Bergmann og Halldór Gunnar nokkur lög. Krakkar úr Cirkus Flik Flak sýndu listir sínar meðan á hátíðinni stóð.
Halldór B. Halldórsson tók dagskrána upp og má sjá hana hér að neðan.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst