Góð mynd fær mann til að gleyma kulda og streði
3. október, 2019

Ísleifur Arnar Vignisson, Addi í London er ekki maður einhamur, hvort sem er í vinnunni eða þegar hann mætir með myndavélina, á einstaka viðburði eða til að fanga það fallega í náttúrunni og fuglalífinu þar sem lundinn er í sérstöku uppáhaldi. 

Hann byrjaði ungur að vinna í fiski og það  hefur hann gert alla tíð, lengst af sem verkstjóri sem eitt og sér er nægt verkefni. Addi lét það samt ekki stoppa sig þegar kom að því taka myndir og þær hafa farið víða um heim og hlotið viðurkenningar.

Addi var strax til í slaginn þegar hann var beðinn um að taka þátt í  sýningaröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt sem heldur áfram í Einarsstofu á laugardaginn,  5. október kl. 13.00 Með honum er Sif Sigtryggsdóttir, Sif í Geisla. Er þetta fjórða sýningin.

Byrjaði meira í gamni en alvöru

„Ég byrjaði að fikta við ljósmyndun árið 1974 en þá er ég tvítugur,“ segir Addi um fyrstu sporin. „Fyrst var þetta meira í gamni en alvöru en síðustu 30 árin hefur maður verið í þessu af fullum krafti. Byrjaði með filmuvélar eins og svo margir. Þá tók maður ekki nærri eins margar myndir og í dag. Það kostaði sitt að láta framkalla allar þessar filmur. Það breyttist svo með stafrænu tækninni þegar hægt var að taka eins margar myndir og maður vildi án þess að þurfa að hugsa um kostnað.“

Hann byrjaði að vinna í Fiskiðjunni hjá Lauga á Heiði 1975 og var orðinn verkstjóri í tækjunum 1976. „Ég tók myndir í Fiskiðjunni sem í dag eru alveg ómetanlegar. Þar má þekkja marga hrausta peyja sem voru óhræddir að taka til hendinni þegar sett var í tækin og svo slá úr þeim. Hörku vinna fyrir hörku menn.  Þegar Fiskiðjan sameinaðist Vinnslustöðinni fylgdi ég með í pakkanum og hef ég tekið mikið af myndum þar.  Undanfarin ár hef ég tekið myndir m.a. fyrir Vinnslustöðina.“

Tekur tíma

Addi er víðar mættur með myndavélina og hefur hann m.a. tekið myndir fyrir ÍBV. „Ég hef tekið myndir á þjóðhátíð sem ÍBV hefur notað í Þjóðhátíðarblaðið undanfarið tíu til fimmtán ár. Einnig hef ég tekið myndir af fótboltaleikjum. Ekki má gleyma yngri flokka mótunum, TM mótinu og Orkumótinu þar sem kraftur, leikgleði og einlægni krakkanna koma fram í hverri einustu mynd.“

Addi segir að baki góðri mynd liggi miklu meiri vinna en flestir geri sér grein fyrir.  „Á þjóðhátíð getur það tekið rosalegan tíma að sitja uppi á fjalli til að ná öðru sjónarhorni á flugeldasýninguna og blysin. Það tekur á en ánægjan mikil þegar vel tekst til.“

Sennilega hafa fáir eða engir tekið fleiri myndum af Smáeyjum en Addi í London og ástæðan er einföld. „Þær blasa við út um stofugluggann hjá okkur og ég hef myndað þær meira en margt annað. Ef maður sér eitthvað sérstakt, sólarlag eða annað þarf maður að vera fljótur út því þetta er svo fljótt að breytast.“

Náttúran heillar

Og þær eru margar klukkustundirnar sem liggja að baki fuglamyndunum hjá Adda sem sumar eru hreint frábærar. „Náttúran hér í Eyjum heillar og þá ekki síst fuglarnir þar sem lundinn er sá sem stendur upp úr. Við Heiðar Egils höfum farið magrar ferðir saman til að taka myndir af lundum og sólsetrinu. Mér finnst einna skemmtilegast þegar pysjan er að koma úr holunum á haustin. Þá eru foreldrarnir að passa upp á þær. Einni fylgdist ég með í sex kvöld í röð sem var einstök upplifun.

Þetta gerist helst í ljósaskiptunum og þá nota ég oftast flass en það virðist ekki hræða lundann. Hann stendur hinn rólegasti og lætur eins og ekkert sé.  Allt tekur þetta mikinn tíma og ef maður er heppinn nást nokkrar góðar myndir, kannski þrjár til fjórar og þá gleymist allt streðið, kuldinn og annað sem fylgir því að hanga undir kletti í marga klukkutíma,“ segir Addi.

Gott framtak

Hann er ánægður með það tækifæri sem ljósmyndarar í Vestmannaeyjum fá með sýningarröðinni í Einarsstofu. „Mér finnst þetta bæði gott framtak, líka jákvætt og skemmtilegt. Sjálfur hef ég haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í þremur samsýningum. Ég hlakka til laugardagsins og verð með sitt lítið af hverju af því sem ég hef verið að gera í gegnum árin,“ segir Addi sem hefur sent nokkrar myndir erlendis sem vakið hafa mikla athygli.

Það verður því spennandi að sjá það sem Addi ætlar að sýna okkur í Einarsstofu kl. 13.00 á laugardaginn.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst