Drottinn leiðir bataferlið
31. október, 2019

Helgi Rasmussen Tórzhamar, tónlistarmaður og háseti á Herjólfi segist alltaf hafa verið með myndavéladellu og byrjaði snemma að taka myndir. Eyddi líka tímanum í að skoða myndir annarra en það var ekki fyrr en 2012 sem hann tekur til við að taka myndir fyrir alvöru. 

Þá urðu mikil tímamót í lífi hans. Helgi sýnir myndir á áttundu sýningunni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt á laugardaginn kl. 13.00 í Einarsstofu. Með honum er Ólafur Lárusson, kennari með meiru.

 „Já. Það var árið 2012 sem ég hætti að drekka og gerði Drottinn að leiðtoga lífs míns. Á þeim tíma átti ég þokkalega vél en nú var ástríðan vöknuð. Ég kaupi  mér alvöru myndavél og fékk Bjarna Þór til að aðstoða mig. Á ég honum mikið að þakka. Trúin er mín stoð í baráttunni og það hjálpar líka að eiga sér tómstundagaman eins og ljósmyndun,“ segir Helgi og það sama eigi við um tónlistina.

Hann segist eiga Bjarna Þór mikið að þakka því hann hafi kennt honum undirstöðuatriðin í ljósmyndun og hvatt sig til dáða. „Hann var duglegur að kenna mér og þolinmóður. Er ég honum ævinlega þakklátur fyrir það. Ég keypti mér Canon 5 D Mark 2 vél á þessum tíma. Átti hana í nokkur ár en er búinn að uppfæra vélakostinn og er með Canon 6 D Mark 2. Ég á líka speglalausa Canon R sem gaman er að leika sér með. Ég keypti líka dróna með myndavél sem gefur aukna möguleika og ég hef notað þó nokkuð. Þá er ég að leika mér með gamlar filmuvélar og framkalla og stækka, allt í svart-hvítu.“

Fín blanda

Helgi er greindur ofvirkur og með athyglisbrest sem hann segir fína blöndu þegar kemur að sköpun. Er ekkert bíða þegar honum dettur eitthvað í hug. „Mér getur dottið í hug að fara upp á Eldfell og þá geri ég það strax. Tek myndavélina með og mynda það sem ég sé. Það er líka gott að geta snúið sér að tónlistinni,“ segir Helgi sem spilar á hljóðfæri og semur lög. „Það er líka hægt að tengja þetta saman. Ég hef verið að gera stuttmyndir og tónlistarmyndbönd þar sem myndataka og tónlist mynda eina heild.“

Eins komið hefur fram er Helgi trúaður og virkur í starfi Hvítasunnukirkjunnar. „Það er Herrann þarna uppi sem stýrir mínu lífi í dag. Ég er lofgerðarleiðtogi í kirkjunni okkar og það er stór hluti af mínum bata.“

Helgi segist verða með fjölbreytta sýningu. „Ég ætla að sýna m.a. myndir úr úteyjum og af smalamennsku. Mér finnst gaman að taka myndir af fólki í smölun og við önnur tækifæri, sérstaklega þegar fólk veit ekki af myndavélinni. Ég sýni myndir teknar á jörðu niðri og myndir úr dróna. Svona sitt lítið af hverju. Ég á ættir að rekja til Færeyja og fer þangað minnst einu sinni á ári. Færeyjar eru ekki síður fallegar en Vestmannaeyjar og kannski fá myndir þaðan að fljóta með í lokin,“ segir Helgi og minnir á sýningartímann.

„Mætið klukkan eitt á laugardaginn í Einarsstofu. Þar verðum við Óli Lár klárir með myndirnar okkar.“

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
DSC 2106
8. júní 2025
13:00
Golfdagurinn í Eyjum
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju í Landakirkju
8. júní 2025
17:00
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju
Landakirkja
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.