Tap hjá Eyjakonum í gær
Stjarn­an bar sigur­orð af ÍBV í fimmtu um­ferð Olís-deild­ar kvenna, í TM-höll­inni í dag (gær), 40:30. Stjörnu­stelp­ur náðu strax yf­ir­hönd­inni í leikn­um og létu hana aldrei af hendi.

Staðan í hálfleik var 21:14, heima­stúlk­um í vil og munaði þar miklu um stór­leik Stef­an­íu Theo­dórs­dótt­ur, sem fór ham­förum í upp­hafi leiks. Mbl.is greindi frá.

Garðbæ­ing­ar héldu áfram að spila vel í síðari hálfleik, þar sem Rakel Dögg Braga­dótt­ir fór fyr­ir sínu liði, með mörg­um glæsi­leg­um mörk­um. �?á átti Haf­dís Lilja Torfa­dótt­ir einnig góðan leik í marki Stjörn­unn­ar og þegar uppi var staðið, munaði 10 mörk­um á liðunum.

Marka­hæst­ar Stjörnu­stelpna voru Stef­an­ía Theo­dórs­dótt­ir með 10 mörk, Rakel Dögg Braga­dótt­ir með sjö mörk og �?or­gerður Anna Atla­dótt­ir með fimm mörk.

Hjá ÍBV var Ester �?skars­dótt­ir marka­hæst með níu mörk, Sandra Erl­ings­dótt­ir kom þar skammt und­an með átta mörk og Sandra Dís Sig­urðardótt­ir skoraði síðan mörk.

Eft­ir leik­inn er Stjarn­an með sjö stig og lyfta sér upp fyr­ir ÍBV, sem eru áfram með sex stig.

Nýjustu fréttir

Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.