Karlalið ÍBV tapaði fyrir Val
Val­ur vann sinn fjórða leik í röð í Olís-deild karla í hand­knatt­leik í dag þegar liðið mætti ÍBV í Eyj­um í leik sem var frestað frá því á fimmtu­dags­kvöld. Áhlaup Eyja­manna kom of seint og Vals­menn fögnuðu sigri eft­ir spenn­andi loka­mín­út­ur, 30:27. Mbl.is greindi frá.
Vals­menn réðu ferðinni í fyrri hálfleik og náðu þar mest sjö marka for­skoti, 11:4, þegar ÍBV skoraði aðeins eitt mark á um tólf mín­útna kafla. �?egar flautað var til hálfleiks voru Vals­menn með þægi­legt sex marka for­skot, 14:8.
Eyja­menn sóttu hins veg­ar í sig veðrið þegar leið á seinni hálfleik­inn og minnkuðu mun­inn niður í eitt mark þegar sjö mín­út­ur voru eft­ir, í fyrsta sinn frá því í stöðunni 2:1. Loka­mín­út­urn­ar voru æsispenn­andi þar sem munaði jafn­an einu marki á liðunum. Vals­menn héldu hins veg­ar út og fögnuðu að lok­um þriggja marka sigri, 30:27.
Val­ur er þar með kom­inn upp í þriðja sæti deild­ar­inn­ar með átta stig líkt og Stjarn­an, en ÍBV er með stigi meira í öðru sæt­inu og mistókst að minnka for­skot Aft­ur­eld­ing­ar á toppn­um niður í eitt stig.
Ant­on Rún­ars­son og Vign­ir Stef­áns­son voru marka­hæst­ir hjá Val með átta mörk eins og Sig­ur­berg­ur Sveins­son sem var marka­hæst­ur hjá ÍBV.

Nýjustu fréttir

Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.