Vinstrihreyfingin- grænt framboð leggur nú sem fyrr höfuðáherslu á að á Íslandi sé öflugt og samábyrgt velferðarkerfi. Einn þáttur í því er áherslan á skattkerfið sé skilvirkt, réttlátt, grænt, jafni tekjur og eyði aðstöðumun. En hvernig er hægt að gera skattkerfið skilvirk, réttlátt o.s.frv. Lítum á það. �?essar leiðir benda Vinstri- græn á:
�?� Stöðva verður þá þróun að æ meiri auður safnist á æ færri hendur. Í dag eiga 10% landsmanna 75% alls auðs í landinu. Meðan þetta er svona eykst ójöfnuður í landinu.
�?� Til að stemma stigu við skattaundanskotum einstaklinga og fyrirtækja frá velferðarkerfinu þarf að stórefla skattaeftirlit og skattrannsóknir. Nýtingu aflandsfélaga í skattaskjólum á að banna.
�?� �?repaskattur verði nýttur til jöfnunar í samræmi við það sem gerist á Norðurlöndunum. �?annig er lögð áhersla á aukin framlög þeirra ríkustu inn í sameiginlega sjóði.
�?� Innheimta á gjald af nýtingu auðlinda og tryggja þannig að arðurinn af sameiginlegum auðlindum renni til þjóðarinnar.
�?� Reglur um þunna eiginfjármögnun verði leiddar í lög og þannig unnið gegn því að íslensk dótturfélög í eigu erlendra aðila komi ósköttuðum hagnaði úr landi.
Allar þessar leiðir eru til þess fallnar að stuðla að öflugu velferðarkerfi og réttlæti. �?ær eru allar færar og þær stuðla allar að því að skapa réttlátara þjóðfélag.
-Ragnar �?skarsson