Endurmerkja þarf um 100 bíla og tæki hjá Samskipum eftir ákvörðun um að færa alla starfsemi félagsins undir eitt merki. Undir eru jafnframt ótal breytingar aðrar, svo sem á húsnæði, pappírum og kynningarefni, en vinnufatnaði verður þó ekki skipt út fyrr en kemur að endurnýjun vegna slits.
�??Við viljum einfalda skilaboð okkar til markaðarins um það flutninganet og þjónustu sem Samskip hafa upp á að bjóða,�?? segir Pálmar �?li Magnússon, forstjóri Samskipa. Hann bendir á að undanfarin þrjú ár hafa Samskip boðið upp á beinar áætlanasiglingar af ströndinni og sigla nú til átta viðkomuhafna vítt og breytt um landið. �??�?essi áhersla á strandsiglingar ásamt þéttriðnu þjónustuneti okkar innanlands gerir okkur nú kleift að bjóða aukna þjónustu á landsbyggðinni.�??
Breytingin átti sér stað 17. þessa mánaðar, en þá var öll starfsemi Samskipa á Íslandi sameinuð undir nafni Samskipa. �?ar á meðal er öll starfsemi sem áður var undir nafni og merki Landflutninga.
�??Með þessum breytingum viljum við endurspegla það heildstæða þjónustuframboð sem fyrirtækið hefur upp á að bjóða og þá liðsheild sem býr innan fyrirtækisins. Samskip eru samhentur hópur starfsmanna sem leggur sig fram um að veita viðskiptavinum fyrirtækisins persónulega og framúrskarandi þjónustu. Við erum samhent lið undir einu merki, merki Samskipa,�?? segir Pálmar �?li.
Samskip bjóða heildstæðar flutningslausnir á landi og sjó. Með breytingunni leitast fyrirtækið við að skerpa áherslur á heildarflutningaþjónustu í einu fyrirtæki, viðmót er einfaldað og tryggt að viðskiptavinir mæti sama góða viðmótinu á öllum starfsstöðvum. Markmið Samskipa er að veita viðskiptavinum sínum bestu mögulegu þjónustu.
Samskip einsetja sér að vera í fararbroddi í flutningum og samhliða sameiningu starfseminnar undir einu nafni leitar fyrirtækið áfram leiða til að efla starfsemina og uppfylla enn betur væntingar viðskiptavina.
Nánari upplýsingar veitir Pálmar �?li Magnússon forstjóri í síma 858-8500.