Börnin okkar
�?g hef setið á Alþingi þetta kjörtímabil sem fulltrúi ykkar, kjósenda í Suðurkjördæmi. �?að hefur verið mikil reynsla, oft erfið, en alltaf áhugaverð og lang oftast ánægjuleg.
Árið 2014 hlotnaðist mér sá heiður og ábyrgð að vera útnefndur sem einn af sérstökum talsmönnum barna á Alþingi af hagsmunafélögum sem starfa í þágu barna. �?g tók þetta hlutverk strax mjög alvarlega og hef styrkst í sannfæringu minni fyrir mikilvægi þessa verkefnis.
�?g hef kynnt mér vel stöðu barna á Íslandi og sett mig inn í mál sem varða þau sérstaklega og hef séð svo margt aðfinnsluvert sem verður að bæta. �?ví miður er það ömurleg staðreynd að stór hópur barna hér á landi býr ekki við sömu tækifæri og önnur börn. Sum þeirra verða undir strax í leikskóla og grunnskóla, vegna félagslegra aðstæðna, fátæktar, fötlunar og skerðinga og fá ekki þann stuðning sem við getum sem samfélag svo vel veitt þeim. Að verða undir hefur gríðarleg áhrif á lífsgæði þessara barna og tækifæri í öllu lífinu og vegur að hamingju foreldra þeirra og annarra aðstandenda. �?að er þyngra en tárum taki, er algjörlega óásættanlegt og óþarft í velmegunarsamfélagi okkar.
Skólakerfið gegnir lykilhlutverki við að tryggja börnum tækifæri til að þroska sig og gera þeim kleift að njóta lífsins á sínum forsendum. Skólinn á að vera án aðgreiningar og mismununar. Hann á að laga sig að einstaklingnum, þörfum hans og hæfileikum. Börn eiga ekki að þurfa að laga sig að skólanum. �?g veit, af eigin reynslu, að skólastjórnendur, kennarar og annað starfsfólk skólanna vilja sinna þeim vel. �?etta góða fólk þarf hins vegar að fá fleiri og margbreytilegri úrræði og stuðning til þess að geta sinnt öllum börnum, þörfum þeirra og forsendum.
Sem talsmaður barna á Alþingi hef ég skrifað margar greinar, flutt margar ræður og lagt fram fyrirspurnir sem lúta að málefnum barna. Í september s.l. hlotnaðist mér sá heiður að vera verðlaunaður fyrir að standa mig best þingmanna í að vekja athygli á og berjast fyrir réttindum barna, ekki síst þeirra sem eru í erfiðri stöðu.
�?essi viðurkenning er mér meira virði en nokkuð annað sem mér hefur hlotnast á lífsleiðinni. Hún er mér líka mikil hvatning til að halda áfram að vinna í þágu barna. �?g veit hins vegar að staða þingmanns færir mér bestu tækifærin til að berjast fyrir þessu mikilvæga málefni. Að bæta stöðu og réttindi barna og jafna tækifæri þeirra til að njóta lífsins og vera virkir og hamingjusamir þátttakendur í samfélaginu.
�?ess vegna bið ég þig ágæti kjósandi að veita mér stuðning til að halda áfram á sömu braut.

Nýjustu fréttir

„Þjóðvegurinn okkar er brotinn“
Elmar kom að 15 mörkum fyrir Nordhorn-Lingen
Náðu fjórum tímum í dýpkun í gær – uppfært
Spurt og svarað: Sonja frá Miðflokknum
ÍBV sækir Hauka heim í öðrum leik undanúrslita
ÍBV tapaði á Hlíðarenda
Bæjaryfirvöld kalla eftir tafarlausum aðgerðum vegna samgöngustöðu
Baldur fyrr í áætlun vegna biðlista

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.