Elliði Vignisson - Nýjustu dýptarmælingar úr Landeyjahöfn
20161106-hreinsad01.grd
Eins og þið sjáið þá er dýpi í og við höfnina nánast eins og best gerist. �?á ekki síst þegar til þess er litið að þessi mæling miðar við jafnstöðudýpi og því er það mun meira þegar flæðir að. �?ví miður hafa þó orðið nokkrar frátafir það sem af er vetrar og öruggt að svo verður áfram enda þessi Herjólfur ekki heppilegur til siglinga í Landeyjahöfn. �?egar maður rifjar upp viðvörunarorð Siglingastofnunar um að aldrei yrði hægt að nýta núverandi skips til þessara siglinga svo neinu næmi þá er ekki hægt annað en að dáðst að því þrekvirki sem skiptstjórar og áhöfn hefur unnið frá því að höfnin var tekin í notkun.
�?að er ömurlegt fyrir okkur Eyjamenn og gesti okkar að vita af þessu mannvirki hér innan seilingar en þurfa samt að sigla erfiða og langa sjóðleið til �?orlákshafnar. Við öll og samfélagið okkar líður fyrir þetta ástand. �?að er því ekkert óeðlilegt að frátafir angri fólk. Mig langar samt að skora á fólk að bera virðingu fyrir þeim erfiðu aðstæðum sem oft geta skapast fyrir framan Landeyjahöfn og þeim vandasömu ákvörðunum sem skipstjórar standa oft frammi fyrir. Sú ábyrgð sem því fylgir að sigla með farþega á skipi sem ítrekað hefur snúist jafnvel við ölduhæð undir 2 metrum er mikil og í ljósi þeirrar reynslu er sem betur fer farið varlega. Með það í huga hlýtur okkur öllum að vera ljóst að nýtt skip mun fyrst og fremst auka öryggi þessara siglinga en vissulega standa vonir til að það lengi einnig verulega þann tíma sem hægt er að nýta höfnina og vonandi allt árið, þótt vissulega verði frátafir.
�?að verður síðan verkefni nýkjörina þingmanna okkar Eyjamanna að ganga einbeittir til þeirra verka að tryggja að nýtt skip komi sem fyrst og að smíðatími þess verði jafnframt nýttur til að bæta höfnina eftir því sem tæknileg þekking gerir mönnum mögulegt.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.