Uppbyggingarsjóður Suðurlands úthlutar 30 milljónum
Uppbyggingarsjóður Suðurlands, sem er hluti af Sóknaráætlun Suðurlands, bárust nú í síðari úthlutun ársins 86 umsóknir og var 52 verkefnum veittur styrkur. Heildarfjárhæð styrkveitinganna nam um 30 milljónum. �?thlutað var um 17 milljónum kr. til 39 menningarverkefna. Uppbyggingarsjóður Suðurlands er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja menningar- og nýsköpunarverkefni í landshlutanum. Við mat á umsóknum vísast til úthlutunarreglna og við miða um mat umsóknum sem finna má á heimasíðu SASS. Verkefnastjórn Sóknaráætlunar á Suðurlandi fer með hlutverk úthlutunarnefndar en fagráð á sviði menningarmála annars vegar og nýsköpunar hins vegar, skila tillögum til verkefnastjórnar. Umsjón og ábyrgð Uppbyggingarsjóðsins er hjá Samtökum sunnlenskra sveitafélaga.
Nokkur verkefni frá Vestmannaeyjum hlutu styrki, sjö úr flokki menningar og tvö úr flokki nýsköpunar. Í síðarnefndum flokki fékk Einsi Kaldi Veisluþjónusta ehf. fyrir The Brothers Brewery 1.000.000 kr. fyrir verkefnið Vörumerkjahönnun fyrir Eldfell Volcanic Red Ale og SegVeyjar ehf. 500.000 kr. fyrir verkefnið Rafmagnslest um
Heimaey �?? arðsemismat. Í flokki Menningarverkefna fengu þeir Gísli Pálsson og Valdimar Leifsson 800.000 kr. fyrir verkefnið Heimaey 1973: Einvígi við jarðeldinn (heimildarmynd); Vestmannaeyjabær 600.000 kr. fyrir verkefnið Gagnaver Eldheima; Leikfélag Vestmannaeyja 400.000 kr. fyrir verkefnið Benedikt Búálfur; Sæheimar – Fiskasafn 400.000 kr. fyrir verkefnið Lundapysjur í Vestmannaeyjabæ; Vestmannaeyjabær 400.000 kr. fyrir verkefnið Lögin í gosinu �?? tímamótatónleikar á tímamótum; Bakvarðahópur Sagnheima, byggðasafns 300.000 kr. fyrir verkefnið Saga og súpa í Sagnheimum 2017; og svo Sagnheimar, byggðasafn 300.000 kr. fyrir verkefnið �?r kompunni í 3D. Sýning safngripa á þrívíddarformi.

Nýjustu fréttir

Saman erum við sterkari
Frambjóðendur á opnum kynningarfundi í Ásgarði
ÍBV sigraði botnlið ÍR í Eyjum
Loppumarkaður í Safnahúsinu um helgina
Styttist í að sundlaugin opni
Segjum það sem við getum staðið við
Guðrún Erlings lætur fimmtán ára draum rætast
Framtíðin er í okkar höndum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.