Drama­tískt jafn­tefli á Ak­ur­eyri
Ak­ur­eyri og ÍBV buðu upp á trylli í dag þegar liðin mætt­ust í Olís-deild karla í hand­bolta. Eft­ir æsispenn­andi loka­mín­út­ur skildu liðin jöfn 24:24. Mbl.is greindi frá.
Ak­ur­eyr­ing­ar hafa nú spilað fjóra leiki í röð án taps en liðið er enn í botnsæti deold­ar­inn­ar, nú með átta stig. Eyja­menn eru komn­ir í tólf stig.
Eyja­menn voru ör­lítið beitt­ari í upp­hafi leiks en heima­menn náðu að jafna fyr­ir hálfleik. Í seinni hálfleik var allt á suðupunkti og liðin skipt­ust á að taka for­ust­una. Menn fuku útaf við hvert tæki­færi og heitt var í kol­un­um.
Ak­ur­eyr­ing­ar eygðu sig­ur um stund en Eyja­menn skoruðu síðasta markið. �?eir fengu svo loka­sókn­ina en frá­bær markvörður Ak­ur­eyr­inga varði það rétt í þann mund sem lokaf­lautið gall.
Leik­ur­inn var ein­vígi tveggja hægri­horna­manna. Kristján Orri Jó­hanns­son var ótrú­leg­ur hjá heima­mönn­um. Hann skoraði þrett­án mörk en í síðasta leik liðsins var hann með ell­efu.
Eyjamaður­inn Theó­dór Sig­ur­björns­son var eng­inn eft­ir­bát­ur Kristjáns Orra. Hann skoraði tólf mörk, þar af sjö úr vít­um. Theó­dór var einnig dug­leg­ur við að fiska bolt­ann ívörn­inni og skóp nokk­ur mörk með því.

Nýjustu fréttir

Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.