Natasha ólétt og spilar ekki með ÍBV í sumar
Natasha Anasi, varnarmaður ÍBV, er ólétt en hún á von á barni í júní. Natasha verður því ekki með ÍBV í Pepsi-deildinni á komandi tímabili. Fotbolti.net greinir frá.
Hin bandaríska Natasha hefur verið í stóru hlutverki í vörn ÍBV undanfarin þrjú tímabil.
Síðastliðið sumar var hún valin í úrvalslið tímabilsins hjá Fótbolta.net.
�??Hún var ein af bestu leikmönnum deildarinnar í fyrra og var frábær fyrir okkur. �?ar voðalega lítið sem ég get gert í þessu. Hennar verður sárt saknað en við finnum annan leikmann í staðinn,” sagði Ian Jeffs, þjálfari ÍBV, í samtali við Fótbolta.net í dag.
Adrienne Jordan, Kristín Erna Sigurlásdóttir, Adelaine Gay og Katie Kraeutner hafa gengið til liðs við ÍBV í vetur auk þess sem lykilleikmennirnir Cloe Lacasse, Sóley Guðmundsdóttir, Shaneka Gordon og Sigríður Lára Garðarsdóttir hafa framlengt samninga sína.
Shaneka verður með ÍBV á ný eftir að hafa misst af öllu síðasta tímabili vegna meiðsla.

Nýjustu fréttir

Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.