Fréttatilkynnig frá Sjómannasambandi Íslands
�?egar viðræðum sjómanna og útvegsmanna var slitið s.l. föstudag setti Ríkissáttasemjari fjölmiðlabann á samninganefndarmenn. Ekki má ræða efnisatriði kjaraviðræðna né það sem skeður á fundum undir stjórn Ríkissáttasemjara.
Sáttaemjari hafði varla lokið máli sínu þegar SFS greinir frá bókun sem fulltrúar sjómanna settu fram. SFS gerir því skóna að bókunin sé í raun ný krafa frá sjómönnum. Og að sjómenn vilji ekki semja.
Með bókuninni eru fulltrúar sjómanna að leita eftir stuðningi SFS að leita skýringa á mismun á verði á uppsjávarfiski í Noregi og á Íslandi sem hefur verið talsverður og óútskýrður.
�?essi munur hefur orðið til þess að mikil tortryggni hefur skapast milli aðila. Bókunin er tilraun til að ná sátt við útgerðina um verðyndun á uppsjávarfiski á Íslandi. Að halda því fram að þessi hafi ekki komið fram áður í samtali sjómana og útvegsmanna er útúrsnúningur. Síðasti samningur sem var felldur innibar nálgun á þessi mál í bókun um upplýsingaskyldu útgerða um hvernig verð myndast til sjómanna.
Með bókuninni er einungis verið að skerpa á þessum þáttum og að sjómenn og útvegsmenn vinni saman að því að skýra þennan mun og af hverju hann er tilkominn. Vel má vera að þær skýringar séu ásættanlegar en fyrst þarf að fá þær skýringar.
Ekki er annað að sjá en að SFS hafi gripið þessa tillögu fulltrúa sjómanna fegins hendi sem hálmstrá til að setja samningaviðræður í hnút og kenna fulltrúum sjómanna um að ósekju.

Nýjustu fréttir

Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.