Eyjamenn áfram í �?tsvarinu
Lið Vestmannaeyja hafði betur í slagnum við lið �?ingeyjarsveitar í �?tsvarskeppni vikunnar, með 82 stigum gegn 70. Afar jafnt var með liðunum í fyrsta hluta keppninnar, en um miðbikið dró nokkuð í sundur með þeim og höfðu Eyjamenn drjúga forystu fyrir lokahlutann, stóru spurningarnar svokölluðu. Í þeim hluta dró nokkuð til tíðinda og spenna færðist í keppnina að nýju. Ruv.is greindi frá.
�?ingeyingar gáfu rétt svör við fyrstu 15 stiga spurningunni, án utanaðkomandi aðstoðar, á meðan Eyjamenn leituðu liðsinnis símavinar í sinni fyrstu stóru spurningu og uppskáru 10 stig. Aftur völdu Eyjamenn 15 stig, og aftur svöruðu þeir rétt. Munaði þá skyndilega aðeins tveimur stigum á liðunum, en Eyjamenn áttu tvær spurningar eftir á móti einni hjá �?ingeyingum. Eyjaliðið valdi sér 10 stiga spurningu og svaraði henni rétt. Munurinn var því 12 stig, og ekkert annað í stöðunni fyrir �?ingeyinga en að velja 15 stiga spurningu. �?viss um að svarið sem þeim fannst líklegast væri rétt, báðu þau um aðra spurningu – en gátu ekki svarað henni. Í ljós kom, hins vegar, að þau voru með rétt svar við fyrri spurningunni.
Hvorugt liðið náði að svara lokaspurningu þáttarins og úrslitin því 82 – 70, sem fyrr segir, og Eyjafólk komið áfram í 8 liða úrslitin. Í liði �?ingeyjarsveitar voru þau Hanna Sigrún Helgadóttir, Sigurbjörn Árni Arngrímsson og �?orgrímur Daníelsson. Lið Vestmannaeyja var skipað Gunnari Geir Gunnarssyni, Gunnari K. Gunnarssyni og Sædísi Birtu Barkardóttur.
Síðasta keppnin í 2. umferð �?tsvars fer fram föstudaginn 17. febrúar. �?á mætast lið Hornafjarðar og Mosfellsbæjar.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.