Kvótann heim
20. september, 2021

Ég hef aðeins að undanförnu verið spurður að því hvað þetta þýði í stefnu Flokks fólksins, kvótann heim?

Svarið er nokkuð margþætt, en sem dæmi:

Að sjálfsögðu viljum við að þeir sem lögðu grunninn að sjávarbyggðum og uppbyggingu landsins á sínum tíma þ.e.a.s. trilluútgerðir á landsvísu geti haldið áfram að lifa og dafna á landsbyggðinni, en séu ekki bara keyptar upp af stórútgerðinni sem hefur aðgang að bönkunum. Liður í því er m.a. að koma á frjálsum handfæraveiðum, en ég er ekki talsmaður einhverra öfga og hef því talað fyrir því að byrja á því að lengja núverandi strandveiðikerfi með því að bæta við hinum mjög svo umdeilda byggðakvóta og tryggja þannig strax 6 mánuði í vor, apríl til og með september. Hins vegar er það eitt af forgangsmálum Flokks fólksins að gefa handfæraveiðar alfarið frjálsar.

Kvótann heim þýðir líka, að þjóðin fái sanngjarnann arð af auðlindinni, tökum dæmi:

Í dag eru veiðigjöldin á þorski liðlega 16 krónur á kílóið. Flest stærstu útgerðarfyrirtækin leigja frá sér aflaheimildir og þar hefur leigan verið upp undir 300 kr. á kílóið, stóran hluta á síðasta fiskveiðiári og mun klárlega hækka á því næsta sökum niðurskurðar Hafró. En hvað á þá veiðigjaldið að vera? Klárlega ættu þeir sem stunda það að leigja frá sér aflaheimildir að greiða veiðigjöld fyrir aðganginn að sjávarauðlindinni en hvert það veiðigjald ætti að vera liggur ekki ljóst fyrir, en ég tel þó að það væri best að hafa það sem fasta prósentu en krónutölu. Lykilatriðið er þó fyrst og fremst að losna við þetta andskotans kvótaleigubrask.

En kvótann heim þýðir líka að í bæjarfélagi eins og mínu sem er Vestmannaeyjabær, hafa frá hruni, eftir því sem ég best veit, verið seld í burtu úr byggðalaginu, á annan tug þúsunda aflaheimilda. Sumir af þessum bátum landa vissulega hér hluta af árinu, en eignarhaldið á kvótanum er farið. Við viljum fá það aftur heim.

En hvar liggja hagsmunir sjómanna þegar kemur að stefnu Flokks fólksins?

Það er mjög auðvelt að svara því. Við viljum skilja á milli veiða og vinnslu og verð á afla á að miðast við markaðsverð á hverjum tíma sem klárlega myndi hækka tekjur sjómanna verulega. Með því losna sjómenn við að ísa yfir fisk sem settur er í gáma og seldur úr landi af fyrirtækjunum, en sjómennirnir fá aðeins verðlagsstofuverðið.

En hvernig kemur þá stefna Flokks fólksins í sjávarútvegsmálum út fyrir starfsfólk frystihúsanna?

Lykilatriðið í þessu er að við komumst að því hvað er raunverulega mikið af fiski í hafinu í kringum Ísland. Um leið með því að fækka kvótabundnum tegundum, verður framboðið um miklu meira en það er í dag og um leið eru mun meiri möguleikar á sérhæfingu í vinnslu á tegundum sem nú eru vannýttar (sjá grein mína: Hvernig getum við bætt Íslenskan sjávarútveg). Sama má segja um skoðun mína varðandi uppsjávarveiðar þar sem ég set fram þá hugmynd að settur verði á lágmarkskvóti í loðnuveiðum til þriggja ára, sem myndi um leið tryggja bæði útgerð og vinnslu ákveðinn og mun meiri stöðugleika en í dag.

Ég var spurður að því um daginn, hvers vegna að setja á lágmarksloðnukvóta til þriggja ára í ljósi þess, að hér erum við eiginlega bara með tæplega hálfa loðnuvertíð síðustu þrjú árin. Mig langar til að svara því sérstaklega.

Tökum síðustu 2 árin. Árið 2020 er engin loðna veidd. Hafró fann ekki nægilegt magn til þess að hægt væri að leyfa veiðar og lauk rannsóknum sínum eftir því sem ég veit best um miðjan mars 2020. En merkilegt nokk, um miðjan apríl sama ár fyllast allir firðir af loðnu fyrir norðan land og ekki bara það, heldur rak töluvert af loðnu á land í Færeyjum. Varðandi þessa loðnu fyrir norðan, þá man ég ekki betur en að fiskifræðingar hafi einhvern tímann látið hafa eftir sér að ef hlýnunin héldi áfram, þá gæti hugsanlega komið sá tími að loðnan gengi ekki sinn vanalega hring.

Loðnuvertíðin 2021

Um mánaðarmótin jan/febr. gáfu fiskifræðingar það út, að ekki hefði mælst nægilega mikið af loðnu til þess að leyfa veiðar og útlitið væri ekki gott vegna þess að eina óvissan væri hvað mikið væri af loðnu undir ísröndinni fyrir norðan land. 6 dögum síðar finnst stór loðnutorfa fyrir austan land og skyndilega eru leyfðar veiðar, reyndar mjög litlar, en nokkrir skipstjórar hér í Eyjum orðuðu það við mig í mars mánuði að það væri ekki eins og loðnan gengi bara með landinu, heldur virtist hún á köflum koma upp úr köntunum. Veruleikinn er sá, að þó svo að ég hafi verið sjómaður hér í Vestmannaeyjum liðlega 35 ár, þá er ég enn að læra og ég er nú farinn að hallast að því að fiskurinn fari ekki eftir einhverri reglustiku, ekki frekar en sjórinn og þess vegna m.a. hef ég kallað eftir því að sjónarmið sjómannsins fái rödd á Alþingi íslendinga. Það er ekki síst vegna þessa sem ég er í framboði nú.

Georg Eiður Arnarson

 

Höfundur skipar 2. sæti á lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.