Hlynur Andrésson keppir á EM í frjálsíþróttum
Stjórn FRÍ hefur samþykkt val Í�?A á keppendum Íslands á EM í frjálsíþróttum sem fram fer í Belgrad 3.-5. mars næstkomandi. Icelandathletics.co greinir frá
Fulltrúar Íslands verða þau Aníta Hinriksdóttir í 800m hlaupi og Hlynur Andrésson í 3000m hlaupi.
Tveir keppendur höfðu náð lágmarki á leikana, þær Aníta Hinriksdóttir og Arna Stefanía Guðmundsdóttir. �?ví miður getur Arna Stefanía ekki þegið boð um keppni, vegna meiðsla. Hún teflir ekki á tvær hættur núna, heldur horfir bjartsýn fram til sumarsins og keppni í sinni aðal grein 400m grindahlaupi.
Stjórn FRÍ hefur ákveðið að nýta sér boð um að senda karl einnig til keppni án lágmarka. Sá sem er næstur lágmarki og raunar svo aðeins munar einu prósenti, er Hlynur Andrésson 3000m hlaupari frá Vestmannaeyjum. Hlynur æfir nú og keppir með liði Easter Michigan háskóla í Bandaríkjunum (sjá hér). Hann hefur á undanförnum vikum náð góðum árangri í millivegalengdarhlaupum og þar á meðal sett tvö Íslandsmet innanhúss, eitt í 3000m hlaupi og annað í míluhlaupi.

Nýjustu fréttir

Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.