Fundur Fjölskyldu- og tómstundaráðs 26. apríl
Fjölskyldu- og tómstundaráð – 193. fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
26. apríl 2017 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu:
Trausti Hjaltason formaður, Páll Marvin Jónsson aðalmaður, Geir Jón �?órisson aðalmaður, Auður �?sk Vilhjálmsdóttir aðalmaður, Guðjón Ragnar Rögnvaldsson 1. varamaður, Jón Pétursson framkvstj.sviðs, Guðrún Jónsdóttir starfsmaður sviðs og Margrét Rós Ingólfsdóttir starfsmaður sviðs.
Fundargerð ritaði: Margrét Rós Ingólfsdóttir,
Auður �?sk Vilhjálmsdóttir yfirgaf fundinn eftir 2.mál.
Dagskrá:
1.
201704165 – Skýrsla til Barnaverndarstofu fyrir árið 2016
Samantekt úr ársskýrslu til Barnaverndarstofu fyrir árið 2016.
Guðrún Jónsdóttir yfirfélagsráðgjafi kynnti samantekt úr ársskýrslu til Barnaverndarstofu fyrir árið 2016.
Ráðið þakkar kynninguna og ítrekar að af fjölda mála má sjá að barnaverndarkerfi sveitarfélagsins nýtur trausts og er öflugt.
2.
200704150 – Fundargerð barnaverndar fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð
Undir þessum lið er fjallað um öll erindi sem falla undir barnavernd og eru trúnaðarmál.
Fundargerð barnaverndar er færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
3.
200704148 – Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
4.
201704145 – Breyting á opnunartíma sundlaugar
Tilkynning um breyttan opnunartíma í sundlaug sumarið 2017
Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar leggur til að opnunartími sundlaugar verði breytt í sumar frá kl. 09 – 18 í staðinn fyrir kl. 10 – 19 eins og nú er. Breytingin tekur gildi í byrjun júní og út ágúst.
Ráðið samþykkir breytinguna, en um er að ræða sama opnunartíma og undir lok síðasta sumars.
5.
200804058 – Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar
Kynning á fyrirkomulagi Vinnuskóla 2017
Ráðinu kynnt tillaga að fyrirkomulagi vinnuskólans sumarsins 2017. Ráðið samþykkir laun, sem og vinnutíma og vinnutímabil. Foreldrum barna í árgöngum 2001-2003 verður sent kynningarbréf á næstu dögum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45

Nýjustu fréttir

Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum
Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
40 ára aldursmunur á vinningshöfum
Hvert viljum við stefna?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.