Híf opp! - Gamansögur af íslenskum sjómönnum
Nýverið kom út hjá Bókaútgáfunni Hólum bókin Híf opp! og inniheldur hún gamansögur af íslenskum sjómönnum. Höfundur bókarinnar er Guðjón Ingi Eiríksson og hefur hann leitað efnis víða. �?arna koma meðal annars við sögu Eiríkur Kristófersson, Magni Kristjánsson, Jón Berg Halldórsson, feðgarnir Oddgeir og Addi á Grenivík, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Lási kokkur, Einar í Betel, Binni í Gröf, Snæbjörn Stefánsson, Fúsi Axels, Ingvi Mór, Slabbi djó, Doddi hestur og Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Eru þá sárafáir upp taldir. Hér á eftir koma nokkrar sögur úr bókinni.
Sumarið 1947 hélt mótorbáturinn Sídon frá Vestmannaeyjum til síldveiða fyrir Norðurlandi. Alls voru sextán manns í áhöfninni og matsveinninn var enginn annar en hinn landsfrægi Lási kokkur.
Í einni landlegunni, í ónefndu bæjarfélagi, ákváðu nokkrir af skipverjunum að bregða sér saman í verslun. �?eir þekktu þar aðeins til og vissu að afgreiðslumaðurinn hafði hlotið viðurnefnið �??þjófur�??.
Lási vildi fara með þeim og var það auðsótt mál. �?eir sögðu honum hvað afgreiðslumaðurinn væri stundum kallaður, en lögðu jafnframt á það ríka áherslu, að þjófsnafnið mætti alls ekki nefna í búðinni.
En Lási var gleyminn og um leið og þeir skipsfélagar koma í búðina gengur hann rakleitt að afgreiðslumanninum og segir glaðhlakkalega:
�??Góðan daginn, þjófabófi minn.�??
…………………………………………………
�?eir Einar í Betel og �?skar Magnús, bróðir hans, gerðu út Gæfuna VE og var sá fyrrnefndi vélstjóri, en hinn skipstjóri.
Eitt sinn voru þeir bræður á bátnum austur við Hjörleifshöfða. �?riðji maðurinn um borð var Georg Stanley Aðalsteinsson, lunkinn náungi sem sagður var eiga auðvelt með að leysa hin margvíslegustu vandamál, ef ekki á borði þá að minnsta kosti í orði.
Skyndilega sjá þeir skipsfélagar að varðskipið Albert kemur öslandi í áttina að þeim. Gæfumenn voru að veiðum innan landhelginnar og því voru góð ráð dýr.
�??Tala þú við þá,�?? sagði Einar við Stanley.
�??Nei,�?? svaraði Stanley.
�??Stanley minn, tala þú við þá,�?? hélt Einar áfram í sínum blíðasta rómi.
�??Nei, kemur ekki til greina,�?? svaraði Stanley eldsnöggt, �??þetta er ykkar mál, þið eruð eigendur bátsins, skipstjóri og vélstjóri, en af hverju segið þið bara ekki að þetta séu algjör mistök, bátinn hafi rekið óvart inn fyrir og þið biðjist fyrirgefningar á því.�??
�??Stanley, Stanley minn,�?? svaraði Einar að bragði, �??þetta er góð hugmynd, en það er betra að þú talir við þá, þú ert vanari að skrökva.�??
…………………………………………………
Í mars 1943 varð hinn alkunni sægarpur, �?orvaldur Guðjónsson í
Vestmannaeyjum, fimmtugur. Í afmæliskveðju til hans í því sambandi rifjaði Ársæll Árnason upp endurminningar á ferðalagi þeirra til Grænlands á Gottu og
segir þar meðal annars:
�??�?ar kynntist ég Valda fyrst. Eftir heimkomuna var þyrlað upp allskonar ógnarsögum um baráttu okkar við ísinn, en í rauninni var eina ógnin, sem við lentum í, stórviðri, er yfir okkur skall á heimleiðinni, eftir að við vorum lausir við allan ís. En til þess var ekkert tekið, því það var svo venjulegt fyrir íslenska sjómenn. Stjórnina á skipinu höfðu ungir fullhugar og fannst Valda þeir halda undan veðrinu lengur en hæfilegt væri. �?að er engum sagt til lasts þó ég segi hér það sem Valdi sagði, þegar hann kom niður í lúkar skömmu áður en snúið var upp í og lagt til drifs.
�??Hu, hvern andskotann, ef þeir vilja drepa sig, þá er mér sama.�??
Svo lagðist hann svo rólegur niður í flet sitt. Veðrið jókst og versnaði aðbúðin í lúkarnum og m. a. urðu svefnfletin rennblaut af sjó. En þegar kojulagsi Valda var að kveinka sér undan og bölva bleytunni, mælti Valdi þessi hreystilegu orð:
�??Láttu ekki svona, maður, þetta verða fiskarnir að hafa!�??�??
…………………………………………………
Eitt sinn voru skipverjar á Ísleifi VE staddir í bænum Peterhead í Aberdeen-skíri í Skotlandi og brugðu sér þar á dansleik. Svenna Tomm langaði mikið til að syngja eitt lag með hljómsveitinni, en vissi hins vegar ekki hvernig best væri að koma því í kring. Nefndi hann þetta við stýrimanninn, Jón Berg Halldórsson, sem �??af góðmennsku sinni�?? bauðst til þess að ganga í málið, hratt og ákveðið.
Jón Berg er ókrýndur konungur hrekkjalómanna í íslensku sjómannastéttinni og sleppir aldrei úr tækifæri til að plata félaga sína. Hann er fljótur að hugsa þegar svoleiðis býðst og fyrr en varir eru þeir fastir í vefnum.
Og nú var það Svenni Tomm. Jón Berg kom að máli við einn úr hljómsveitinni og spurði hvort það væri ekki í lagi að einn skipsfélagi sinn stæði hjá þeim á sviðinu á meðan þeir spiluðu uppáhaldslagið hans, When the Saints go Marching in. �?að var auðsótt mál.
Svenni Tomm fékk aftur á móti þau skilaboð frá Jóni Berg, að honum væri velkomið að syngja þetta tiltekna lag með hljómsveitinni �?? hann skyldi bara drífa sig upp á svið.
Og upp á sviðið fór Svenni Tomm. Hljómsveitin hóf að spila �??Saintsinn�?? og gerði hann nokkrar tilraunir til þess að komast að míkrafóninum, en allar voru þær árangurslausar, blokkeraðar af hljómsveitarmeðlimunum. Skyldi hann ekkert í þessari þvermóðsku þeirra, enda höfðu þeir örfáum augnablikum áður gefið vilyrði sitt fyrir því að hann legði þeim lið við sönginn �?? að sögn Jóns Berg!
…………………………………………………
Eiginkonur skipverjanna á Ísleifi fengu einhverju sinni kveðju frá þeim í óskalagaþætti sjómanna í Ríkisútvarpinu. �?eir höfðu þá verið lengi að veiðum í Norðursjónum og völdu með Bítlalagið �??Help�??.
Viku síðar fengu þeir kveðju frá eiginkonum sínum í sama þætti með laginu … �??Help Yourself�??.
…………………………………………………
Áhafnarmeðlimirnir á Ísleifi ákváðu eitt sinn á leiðinni í Norðursjóinn að fara í megrun og koma heim að hausti tágrannir og nettir, konum og kærustum til mikillar gleði. Um keppni yrði að ræða og þegar Ísland hvarf sjónum mættu allir upp í brú og athöfnin hófst.
�??Við vorum með snærisspotta,�?? segir Ingvar Viktorsson, �??og mældum mitti hvers og eins. Sá feitasti var fyrstur – nefnilega ég �?? og svo koll af kolli. Bundinn var hnútur við mælinguna og hann einkenndur með mismunandi lit eftir því hver átti í hlut. Svo var spottinn hengdur upp í brúnni á áberandi stað og það tilkynnt að næsta mæling yrði að þremur vikum liðnum.�??
Menn lögðu sig virkilega fram í þessu, enda minntir á keppnina á hverjum degi og ekki spillti fyrir að sigurvegarinn fengi bjór að launum, en hann var ekki fáanlegur á Íslandi á þessum tíma �?? og reyndar ekki fyrr en löngu síðar.
Svo voru þrjár vikur liðnar og allir mættu í brúna.
�??Menn voru spenntir,�?? segir Ingvar, �??en það breyttist fljótt í algjört áfall þegar í ljós kom að þeir sverustu, sem fyrst voru mældir, höfðu heldur betur bætt á sig þrátt fyrir mikið aðhald, sem kostaði suma blóð, svita og tár. �?etta var í rauninni alveg ótrúlegt og menn skildu hvorki upp né niður í þessu, þangað til … stærðfræðingurinn í hópnum fann það út að vitaskuld hafði spottinn styst við hvern hnút og var því ekki jafnlangur og þegar fyrst var mælt. Mönnum létti mjög við þessa uppgötvun, enda kom svo í ljós, þegar rétt var að farið, að mittismál flestra hafði minnkað frá upphafi túrsins.�??
…………………………………………………
Eitt sinn stóð Sigurður Árnason, skipherra hjá Landhelgisgæslunni, Binna í Gröf að veiðum í landhelgi austur á Vík. Binni var ferjaður um borð í varðskipið og þar deildu þeir lengi því að Binni þrætti og sagðist ekki hafa verið fyrir innan. Endaði það með því að Sigurður skipaði honum að sigla í land þar sem dæmt yrði í málinu. �?egar Binni var á leið frá borði, kominn út að lunningu, sneri hann sér við, horfði í augu Sigurði og segir:
�??Siggi, ég var ekki fyrir innan, ég sver það við svip augna minna.�??
Eitt andartak var þögn og Sigurði þótti svo mikið sakleysi skína úr því auganu sem hann horfði í að honum rann allur móður og sagði:
�??Binni, ég trúi þér, farðu, við gerum ekki meira úr þessu.�??
Binni lét ekki segja sér það tvisvar og fór frá borði.
Allnokkru síðar frétti Sigurður hvernig í pottinn var búið og sagði þannig frá því:
�??Binni hafði lent í slysi nokkru áður en fundum okkar bar saman þarna á Víkinni og augað, sem ég féll fyrir vegna fullfermis af sakleysi, var glerauga.�??

Nýjustu fréttir

Slá ekki slöku við
Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins
Útgáfutónleikar Vina og vandamanna: Eyjalögin lifa áfram
Sjolag.is í stað veður- og ölduspár á netinu
ÞESAL – Partýljón, teiknimyndir, djamm og djús
Lúðrasveitir sameinast með stórstjörnum í Hörpu
Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.