ELDHEIMAR vinsælasti viðkomustaður erlendra ferðamanna í Vestmannaeyjum.
Frá því að eldgosasafnið Eldheimar opnaði hefur það notið mikilla vinsælda. Á safninu eru tvær sýningar annarsvegar er saga Heimaeyjargossins 1973 sögð á áhrifamikinn hátt og hinsvegar er fræðslu sýning um þrónu lífs í Surtsey, sem gaus 1963 �?? 67. Surtsey er einnig á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna fyrir sérstöðu sína.
�?að er greinilegt að áhugi erlendra ferðamanna á eldgosum er mikill. Frá opnun Eldheima fyrir tæplega 3 árum hafa hátt í 100.000 gestir heimsótt safnið. Flestir þeirra eða um 80% eru erlendir ferðamenn.
�?að styrkir áhrifin af Eldheimum að safnið er við rætur Eldfells, fjallsins sem varð til í náttúruhamförunum miklu 1973.. Miðpunktur safnsins eru rústir húss er stóð við Gerðisbraut 10. �?að á sér enga hliðstæðu í heiminum að jafn ungar gosminjar hafi verið grafnar upp. Með hjálp nýjustu margmiðlunartækni við hlið húsarústanna er gosnóttin 23.janúar 1973 rifjuð upp. Farið yfir hvernig það var fyrir um 5.300 íbúa Vestmannaeyja að vakna við drumur eldgossins og flýja í skyndi heimili sín. Margir þeirra sáu þau aldrei aftur. Á fjórða hundrað hús og byggingar urði hrauni, ösku og eldi að bráð.
Safnið hefur fengið mjög lofsamleg ummæli hvort sem er í fjölmiðlum eða á Tripatvisor. Safnið hefur tekið við fjölda viðurkenninga s.s. Hönnunarverðlaunum ársins 2015. �?að var einnig mikil viðurkenning fyrir safnið að The Guardian valdi það á lista yfir áhugaverðustu nýungar á sviði ferðaþjóinustu um víða veröld á sl. ári.
Hönnuður Eldheima er Axel Hallkell Jóhannesson honum hefur svo sannarlega tekist vel til.
Arkitektúr hússins hefur vakið mikla athygli fyrir einstök frumlegheit. Byggingin á sér enga hliðstæðu. �?að er hátt til loft og vítt til veggja og hægt að virða fyrir sér húsarústina frá ýmsum sjónarhornum frá svölum á annari hæð eða brú sem liggur í gegnum bygginguna.
Í safninu er einstaklega skemmtilegt rými fyrir veitingasölu og menningarviðburði. �?túr rýminu er gengið út á pall, með stórkostlegu útsýi yfir Vestmannaeyjar. �?að er ánægulegt að segja frá því að þetta rými býður uppá einn besta hljómburð landsins. Nokkuð sem styrkir og eflir svo sannarlega mikilvægi og notagildi þessa rýmis. Arkitekt hússins heitir Margrét Kristín Gunnarsdóttir.
Fyrir utan það að vera safn á heimsmælikvarða þá eru Eldheimar einnig menningarmiðstöð. Á safninu eru reglulega metnaðarfullir menningarviðburðir. Tónleikar myndlistasýningar bókmenntadagskrár m.m.
Kristín Jóhannsdóttir, forstöðumaður.

Nýjustu fréttir

Margrét Rós: „Ég er hvorki í fýlu né lít á mig sem tapara“
Slá ekki slöku við
Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins
Útgáfutónleikar Vina og vandamanna: Eyjalögin lifa áfram
Sjolag.is í stað veður- og ölduspár á netinu
ÞESAL – Partýljón, teiknimyndir, djamm og djús
Lúðrasveitir sameinast með stórstjörnum í Hörpu
Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.