ÍBV hafði betur gegn KR - myndir
ÍBV og KR mættust í Pepsi-deild karla rétt í þessu þar sem lokatölur voru 3:1, heimamönnum í vil.
Andri �?lafsson, fyrirliði ÍBV, kom Eyjamönnum á bragði eftir einungis átta mínútna leik. Sindri Snær Magnússon tvöfaldaði síðan forystuna fyrir ÍBV með frábæru skoti utan af velli. KR-ingar voru hins vegar ekki lengi að svara en á 42. mínútu minnkaði Tobias Thomsen metin fyrir Vesturbæinga með fínu skallamarki og var staðan 2:1 í hálfleik. Eyjamenn byrjuðu seinni hálfleik af krafti og var Sindri Snær búinn að gera sitt annað mark og þriðja mark ÍBV á 47. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki og verðskuldaður sigur Eyjamanna staðreynd.
�?skar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, var að sjálfsögðu á vellinum til að taka myndir.

Nýjustu fréttir

Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Kótilettur til góðs í Höllinni
Æfðu viðbrögð við eldsvoða í Kjarnanum
Aglow-konur hittast í kvöld
Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.