Laugavegshlaupið var haldið í 21. sinn sl. laugardag en það er 55 kílómetra langt utanvegahlaup fyrir mjög vana hlaupara sem eru a.m.k. 18 ára. Laugavegurinn tengir saman Landmannalaugar og �?órsmörk á sunnanverðu hálendi Íslands. Hlaupið er í hugum margra það skemmtilegasta sem í boði er á Íslandi og ekki síst fyrir þær sakir hve krefjandi leiðin er og þá ótrúlegu náttúrufegurð sem hlauparar verða vitni að.
Í ár tóku 486 manns þátt í hlaupinu en aðeins 430 komust á leiðarenda í �?órsmörk. Einn þeirra var Eyjamaðurinn Garðar Heiðar Eyjólfsson en hann endaði í 35. sæti í karlaflokki og í 38. sæti í heildina á tímanum 5:58:02. Síðustu misseri hefur Garðar einnig séð um að halda utan um hóp áhugahlaupara hér í Eyjum sem nefnist einfaldlega Eyjaskokk.
�??Líkaminn er misgóður eftir svona átök og fer það allt eftir undirbúning og ástandi hverju sinni,�?? sagði Garðar aðspurður út í ástandið á skrokknum eftir helgina. �??�?g til dæmis hljóp rúmlega heilt maraþon (47,6 km) í Esjunni fyrir um mánuði síðan og það tók virkilega á að klára það hlaup. Laugavegurinn er aðeins auðveldari undir fótinn og er ég töluvert fljótari að jafna mig eftir þetta hlaup en Esjuhlaupið í júní sl. en það er eins með öll löng hlaup að hvíld eftir svona átök er mjög mikilvæg og mælt er með því að taka alveg eina viku í slökun þegar maður hleypur svona vegalengdir áður en maður byrjar að hreyfa sig eitthvað aftur. Eymsli eru mest í fótum og þá helst undir iljum og hnjám en auk þess er ég aðeins aumur í herðablöðum eftir töskuna sem ég hljóp með.�??
Hættir ekki fyrr en hann bætir met frænda síns
Ertu ánægður með tímann þinn? �??Markmið mín fyrir þetta hlaup voru aðeins háleitari en raun bar vitni en þau miðuðust að því að aðstæður við hlaupið yrðu sem allra bestar. �?g lagði upp með markmið A sem var að hlaupa þetta á 5:15:00, markmið B var að klára undir 5:27:00 og er ástæða fyrir þeim tíma sú að Daði Garðarsson, bróðir mömmu á þann tíma og ætlaði ég mér að bæta hann. �?egar leið á hlaupið var ég fljótur að sjá að þessum tímum var ekki hægt að ná enda var töluvert rok alla leiðina og allt beint í fangið svo það hægði á öllum keppendum auk þess sem maður fékk að kynnast íslenskri veðráttu eins og hún gerist �??best�?� með sól, rigningu, snjókomu, hagléljum ásamt �??dashi af þoku,�?? sagði Garðar sem eins og fyrr segir var á tímanum 5:58:02.
�??�?g kom í mark á 5:58:02 og er ég bara nokkuð ánægður með þann tíma en lengi má gera betur og ég stefni á að hlaupa þetta hlaup aftur á næsta ári því ég ætla mér að slá tíma frænda míns og hætti ég ekki fyrr en það tekst.�??
Sl. 15 ár hefur Garðar hlaupið annað slagið en í raun aldrei markvisst og ekki með neitt markmið í huga. �??�?g byrjaði hins vegar að hlaupa fyrir rúmlega ári síðan að einhverju viti og byrjaði ég að hlaupa með Hlaupahópi Ármanns í Reykjavík en vinur minn er hlaupaþjálfari þar. �?g tók síðan þátt í nokkrum hlaupum í fyrra og þar sá maður bætingu á milli hlaupa sem var virkilega skemmtilegt og hvetjandi fyrir mig. �?g byrjaði að hlaupa nokkur 10 km hlaup og tók síðan þátt í Reykjavíkurmaraþoninu (hálft maraþon – 21,1 km) í fyrra og náði þar settu markmiði að hlaupa þá vegalengd undir 1:30:00 en tíminn minn var 1:29:43. Einnig hljóp ég Volcano Trail Run í byrjun september í fyrra sem er 12 km utanvegahlaup og er það hlaup með skemmtilegri hlaupum sem ég hef hlaupið en mér finnst utanvegahlaup töluvert skemmtilegri en götuhlaup.�??
Nú er rúmur mánuður í Reykjavíkurmaraþonið í ágúst, er stefnan sett þangað? �??�?g ætla að sjá hvernig lappirnar hjá mér recover-a á næstu dögum en mig langar til að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu og ná að klára þá vegalengd á undir 40 mínútum en minn besti tími er 40:05. Miðað við það form sem ég er í núna á ég að leika mér að þeim tíma. Lengri vegalengd í því hlaupi væri óraunhæft miðað við hvað ég er búinn að vera að hlaupa mikið sl. mánuð,�?? sagði Garðar.
Allir velkomnir í Eyjaskokkið
Hvað getur þú sagt um Eyjaskokkið og hvernig á fólk að snúa sér ef það hefur áhuga á að slást í hópinn? �??Eyjaskokk er í raun hópur fólks á öllum aldri sem hefur áhuga á hlaupum á einhvern hátt. Við reynum að hittast a.m.k. tvisvar í viku og þá aðallega á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:15 en sá tími hefur hentað mörgum og tökum við þá interval æfingar sem ég set upp en slíkar æfingar eru allt frá 200 m til 1500 m hlaup með endurtekningum og pásum. Einnig hefur það verið opið að hittast á laugardögum og taka þá stutt eða löng hlaup sem eru þá meira tempó hlaup en ég hef ekki verið að setja fastan tíma á það. �?g vil frekar að fólk tali sig saman og hlaupi þá vegalengd sem hentar hverjum og einum,�?? sagði Garðar sem veit að margir hafa áhuga á að mæta en þora það jafnvel ekki.
�??�?g veit til þess að margir hafa áhuga á að mæta á hlaupaæfingu og prufa en þora það kannski ekki alveg þar sem margir halda að þeir/þær/þau séu ekki í nægilega góðu formi til að takast á við þetta. �?g set allar æfingar þannig upp að við hlaupum einhverja vegalend X til Y mörgum sinnum og hleypur hver og einn á sínum hraða. �?annig stjórnar maður álaginu sjálfur á æfingunni og ef viðkomandi er alveg búinn á því, þá er bara langbest að stoppa og hvíla sig. �?að breytir engu hvort það er hlaup eða önnur hreyfing, það er alltaf erfitt að koma sér af stað í byrjun en eftir því sem líður á, verða æfingarnar auðveldari og hef ég séð mikinn mun á þeim einstaklingum sem hafa verið að mæta reglulega á æfingar sl. vikur/mánuði hvað varðar úthald og fleira. Fyrir áhugasama, þá er um að gera að finna hópinn á Facebook undir nafninu �??Eyjaskokk�?� og fylgjast með þar en ég set alltaf inn æfingar tvisvar í viku og tek ég þá fram hvernig æfingin er uppbyggð, hvar við hittumst og hvar við munum hlaupa,�?? sagði Garðar að lokum.